Landsbankinn nýtir heimild til kaupa á eigin hlutum - júlí 2021
Landsbankinn býðst til að kaupa hluti af hluthöfum á endurkaupatímabili sem stendur frá og með 26. júlí 2021 til og með 9. ágúst 2021.
Þeir hluthafar sem ákveða að taka boði bankans skulu fylla út tilkynningu þar að lútandi og senda bankanum. Eyðublað fyrir tilkynninguna er aðgengilegt á vef bankans. Tilkynningar verða afgreiddar á tímabilinu í þeirri röð sem þær berast bankanum þar til hámarkinu (57 milljónum hluta) er náð. Verði hámarkinu náð á endurkaupatímabilinu verða frekari tilkynningar því ekki afgreiddar.
Í samræmi við ákvörðun aðalfundar býðst Landsbankinn til að kaupa hvern hlut á endurkaupatímabilinu á gengi sem samsvarar hlutfallinu á milli eigin fjár sem tilheyrir hluthöfum bankans og hlutafjár bankans, samkvæmt síðasta birta uppgjöri áður en endurkaupatímabilið hefst.
Samkvæmt árshlutauppgjöri Landsbankans fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2021 er eigið fé sem tilheyrir hluthöfum bankans 267.871 milljónir króna og útistandandi hlutir 23.625 milljónir. Í samræmi við framangreint býðst Landsbankinn því til að kaupa hvern hlut á genginu 11,3387 á endurkaupatímabilinu.
Heildarfjöldi hluta í bankanum er 24.000 milljónir hluta. Fjöldi hluthafa í bankanum er 881. Ríkissjóður á um 23.567 milljónir hluta eða um 98,2% af útgefnum hlutum. Bankinn á um 375,5 milljónir eigin hluti eða um 1,56% af útgefnu hlutafé. Aðrir hluthafar en ríkissjóður og bankinn eiga um 57 milljónir hluta eða um 0,24% af útgefnu hlutafé.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fyrir hluthafa sem vilja nýta sér boð bankans
Þá verða upplýsingar veittar í síma 410 4040 og þú getur einnig sent tölvupóst á vl@landsbankinn.is.