Fréttir

Við erum til stað­ar til að leysa úr mál­um

Vegna fjöldatakmarkana þarf að panta tíma í útibúum og í fyrirtækjaþjónustu. Við hvetjum viðskiptavini til að nota símann, netbanka og Landsbankaappið eins og hægt er en þannig er hægt að leysa fjölmörg erindi á einfaldan og fljótlegan hátt.
4. október 2020

Hægt er að bóka tíma í útibúi eða símtal frá ráðgjafa á vef bankans. Yfirleitt er hægt að komast að samdægurs. Við biðjum viðskiptavini um að panta aðeins tíma í útibúi ef erindið er brýnt og ekki má leysa úr því með öðrum hætti.

Tímapantanir í útibúum og fyrirtækjaþjónustu eru nauðsynlegar vegna hertra samkomutakmarkana stjórnvalda. Þær taka gildi að morgni mánudagsins 5. október 2020 og ná til allra útibúa bankans, Fyrirtækjamiðstöðvar Landsbankans og afgreiðslu Bíla- og tækjafjármögnunar í Borgartúni 33 í Reykjavík.

  • Viðskiptavinir geta annast nánast öll bankaviðskipti sjálfir í Landsbankaappinu, netbankanum og á vef bankans.
  • Hægt er panta tíma í útibúi eða símtal frá ráðgjafa á vef bankans, með því að hafa samband við Þjónustuver Landsbankans í síma 410 4000 eða með því að senda póst á netfangið landsbankinn@landsbankinn.is.
  • Við hvetjum viðskiptavini sem þurfa aðstoð eða eru óvanir að nýta sér rafrænar lausnir til að hafa samband.
  • Hraðbankar Landsbankans eru flestir aðgengilegir allan sólarhringinn. Hægt er að sjá staðsetningu og fjarlægð í næsta hraðbanka í Landsbankaappinu.

Nánari upplýsingar

Nýttu þér bankaþjónustu í símanum og á netinu

Polski

Jesteśmy po to, aby zająć się Twoimi sprawami

Þú gætir einnig haft áhuga á
20. des. 2024
Samfélagssjóður Landsbankans styrkir 35 verkefni
Samfélagsstyrkjum samtals að upphæð 15 milljónum króna var úthlutað úr Samfélagssjóði Landsbankans fimmtudaginn 19. desember 2024. Alls hlutu 35 verkefni styrk að þessu sinni. Verkefnin eru afar fjölbreytt og gagnast fólki á öllum aldri og víða um land.
19. des. 2024
Dagatal Landsbankans 2025 - Vatnið
Dagatal Landsbankans fyrir árið 2025 er tileinkað vatninu og ólíku hlutverki þess í lífi okkar allra. Vatnslitamyndir eftir myndlistamanninn Stefán „Mottuna“ Óla Baldursson prýða dagatalið í ár.
19. des. 2024
Afgreiðslutími um jól og áramót
Útibú og þjónustuver Landsbankans verða lokuð á aðfangadag, jóladag, annan í jólum og á nýársdag. Á gamlársdag er opið til kl. 12 sem þýðir að útibú sem alla jafna opna eftir kl. 12 eru lokuð á gamlársdag. Að öðru leyti er opið samkvæmt hefðbundnum afgreiðslutíma. Appið og netbankinn eru að sjálfsögðu aðgengileg hvar og hvenær sem er.
Vilhelm Már Þorsteinsson, Halla Tómasdóttir forseti Íslands, Jón Atli Benediktsson, Jón Þ. Sigurgeirsson, Lilja B. Einarsdóttir, Sóllilja Bjarnadóttir, Aysan Safavi, Adam Janusz Switala og Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir.
6. des. 2024
Forseti Íslands ræddi um mikilvægi menntunar á fundi Háskólasjóðs Eimskipafélagsins
Í ávarpi sínu á hátíðarfundi Háskólasjóðs Eimskipafélags Íslands minnti Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, á mikilvægi háskólamenntunar, nýsköpunar og rannsókna. Á fundinum kynntu þrír styrkhafar úr sjóðnum doktorsverkefni.
Kona með hund
4. des. 2024
Ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar inn á íbúðalán endurnýjast sjálfkrafa
Við vekjum athygli á að þau sem eru með virka ráðstöfun á viðbótarlífeyrissparnaði inn á höfuðstól íbúðalána þurfa ekki að sækja sérstaklega um áframhaldandi nýtingu úrræðisins, heldur mun það endurnýjast sjálfkrafa um áramótin.
3. des. 2024
Helgi Áss Íslandsmeistari eftir sigur á Friðriksmóti Landsbankans
Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson kom, sá og sigraði á Friðriksmóti Landsbankans, Íslandsmótinu í hraðskák, sem fram fór 1. desember í Landsbankanum í Reykjarstræti.
29. nóv. 2024
Ljósin á Hamborgartrénu tendruð laugardaginn 30. nóvember
Ljósin verða tendruð á Hamborgartrénu 30. nóvember kl. 17.00 við hátíðlega athöfn þar sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur jólalög við jólatréð.
Austurbakki
22. nóv. 2024
Breytingar á viðmiðum vegna nýrra íbúðalána
Landsbankinn gerir breytingar á hámarkslánstíma nýrra verðtryggðra íbúðalána og veðhlutföllum sem gilda um verðtryggð og óverðtryggð íbúðalán.
Landsbankinn
22. nóv. 2024
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi mánudaginn 2. desember 2024. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
21. nóv. 2024
Vel heppnaður fundur um leiðir til að stækka fyrirtæki
Hátt í 200 manns sóttu vel heppnaðan fund um hvernig hægt er að stækka fyrirtæki sem var haldinn í Landsbankanum í Reykjastræti 20. nóvember. Á fundinum fjölluðu eigendur og stofnendur þriggja fyrirtækja um hvernig þau stækkuðu sín fyrirtæki og áskoranirnar sem þau tókust á við.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur