Af hverju heit­ir hrað­banki ekki tölvu­banki?

Hæ! Áttu eitthvað í handraðanum? Eða þarftu kannski að skreppa á Raufarhöfn? Geturðu notað kortið þitt í tölvubankanum? Vissir þú að þetta tengist allt peningum með einhverjum hætti?
Reykjastræti
16. nóvember 2023

Þegar ný tækni lítur dagsins ljós þarf að búa til orðræðu utan um hana. Nýyrðasmíð er ekki auðveld og á sér ekki stað á efstu hæð í einangruðum fílabeinsturni. Virðulegustu nefndir sprenglærðra sérfræðinga geta komið með rökstuddar tillögur eftir langa legu undir feldi, en það er til lítils ef samfélagið tekur nýyrðið ekki í notkun. Handraði og tölvubanki voru tillögur að heiti á því sem við nú köllum hraðbanka, sem augljóslega lutu í lægra haldinu. Í New South Wales fylki í Ástralíu var Íslendingasamfélagið frumlegt og þjóðlegt og kallaði hraðbanka á tímabili Raufarhafnir, en það datt líka upp fyrir. Tíminn líður hraðar sérhvern dag, ekki bara í lagatextum, og nýyrði fæðast, ná fótfestu (eða ekki) og falla svo aftur í gleymskunnar dá.

Hjá Landsbankanum viljum við ekki einungis bjóða viðskiptavinum upp á nýstárlegar stafrænar leiðir til að sinna bankaviðskiptum, heldur einnig orðaforða til að tala um þær. Við leggjum mikla áherslu á að útgefið efni sé vel úr garði gert, yfirlesið og á góðri íslensku. Helstu skýrslur bankans eru gefnar út á hinu ástkæra ylhýra og sérfræðingar bankans taka ekki bara þátt í umræðunni, heldur líka í mótun tungumálsins sem hún fer fram á. Nærtækustu dæmin eru úr fjártækni, þar sem þróunin er hvað hröðust.

Fjártækni ekki komið í orðabanka

Hugtakið fjártækni er einmitt vel heppnað nýyrði og gaman væri að vita hver stakk upp á því fyrst. Orðið er þýðing á enska hugtakinu fintech sem líka er ansi nýtt af nálinni. Orðið er samsuða af financial technology og vísar í tækni sem hefur þann tilgang að bæta og sjálfvirknivæða fjármálaþjónustu. Á vef Landsbankans skilar leit að orðinu fleiri niðurstöðum en hægt er að kasta tölu á. Fjártæknihugtakið er notað í fréttum á vef bankans, í skýrslum og upplýsingatextum og er útskýrt sérstaklega í greininni „Hvert stefnir bankaheimurinn?“ hér á Umræðunni. Fjártækni hefur haslað sér völl í tungumálinu en til skamms tíma höfðu hvorki Árnastofnun, MáliðSnara tekið orðið upp á sína stafrænu arma, skrásett það eða skilgreint.

Í þessu felst engin gagnrýni - það er eðlilegt að notkun móti málið og jafnvel æskilegt að nýyrði myndist með neðansækinni nálgun frekar en ofansækinni. Tillaga þriggja alþingismanna um að hafna vinsæla nýyrðinu „bíll“ og kalla fyrirbærið frekar „sjálfrenning“ var samþykkt af þingheimi en er í dag ekkert nema skemmtileg saga, varnaðarorð til þeirra sem ætla að stýra þróun tungumálsins með gerræðislegum gerningum. Bíll er stytting á franska orðinu automobile. Í fjármálaheiminum eru til nokkur orð með svipaðan uppruna, þ.e. nýyrði sem eru aðlögun á erlendu orði eða hugtaki frekar en þýðing. Posi er myndað út frá skammstöfuninni á point-of-sale instrument og vísar í daglegu tali í kortalesara. Pinnið, sem bankar og kortafyrirtæki hvetja þig til að leggja á minnið, er myndað á svipaða hátt út frá skammstöfuninni á personal identification number, PIN. Önnur orð tökum við óbreytt inn í málið, gjarnan vegna þess að þau falla að beygingarreglum íslensks máls. Nærtækasta dæmið er kannski app, sem virðist í dag hafa unnið fullnaðarsigur á öðrum keppendum um fyrsta sætið, svo sem smáforrit, stefja, smælki og verkforrit.

Áhersla á íslensku

Önnur nýyrði krefjast meiri yfirlegu og eru afrakstur meðvitaðrar umræðu. Hér í Landsbankanum erum við sérstaklega stolt af hinum heimaræktuðu hugtökum „fyrirmælafölsun“ og „sæmdarkúgun“. Fyrirmælafölsun vísar í CEO fraud, sem felst í því að netglæponar senda starfsfólki fyrirtækja fölsk fyrirmæli í nafni stjórnenda. Orðið hefur verið í umferð síðan árið 2016 og lögreglan hefur meðal annars notað það til að vara við athæfinu. Sæmdarkúgun er alveg nýtt, þýðing á sextortion, en þar vega óprúttnir aðilar að sæmd og heiðri þolandans með ýmsum hætti, t.d. með hótun um myndbirtingu á netinu. Þó slíkum sæmdarkúgunum hafi verið beitt til að hafa fé af fólki frá árinu 2013 hefur engin íslenskun fest sig í sessi enn.

Hjá Landsbankanum leggjum við okkur fram við að skrifa vandaða íslensku. Tungumálið er í sífelldri þróun. Ert þú með tillögu að skemmtilegri þýðingu á fjármálahugtaki? Nýyrði sem við gætum notað? Sendu línu á þýðanda bankans, agnes.m.vogler@landsbankinn.is.

Greinin birtist fyrst 19. desember 2019 en var uppfærð 16. nóvember 2023.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Hamborgartréð tendrað í Reykjavík
28. nóv. 2024
Hamborgartréð - saga samfélagsbreytinga og þakklætis
Saga Hamborgartrésins er hógvær, en á vissan hátt bæði breytingasaga Reykjavíkur og falleg jólasaga gjafmildi og þakklætis.
16. sept. 2024
Aðgerðir og árangur fyrirtækja í sjálfbærni
Fyrir nokkrum árum þurftu fyrirtæki sem sögðust sinna sjálfbærnimálum iðulega að útskýra hvað fælist í sjálfbærni og hvers vegna þau væru yfirleitt að leggja í þessa vinnu. Nú hefur umræðan breyst og skilningur aukist á mikilvægi þess að atvinnulífið taki fullan þátt í að stuðla að aukinni sjálfbærni og þar með áframhaldandi velsæld mannkyns.
Sjálfbærnidagur 2024
5. sept. 2024
Sjálfbærnidagur 2024 – upptökur
Sjálfbærnidagur Landsbankans var haldinn í þriðja sinn miðvikudaginn 4. september 2024 og var afar vel sóttur.
hinsegin dagar
9. ágúst 2024
„Hver þú ert á ekki að stöðva þig í að finna hreyfingu við hæfi“
Níu atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans fyrir Gleðigönguna sem fram fer á laugardaginn. Eitt þeirra atriða er Öðruvísi íþróttir.
Hús í Reykjavík
18. júní 2024
Snjóhengjan sem verður vonandi að skafli
Í byrjun sumars 2021 var sögulega lágt vaxtastig á Íslandi. Þetta sumar og þeir mánuðir sem á eftir komu voru annasamir í Landsbankanum. Þúsundir viðskiptavina breyttu íbúðalánum sínum í óverðtryggð íbúðalán, nafnvaxtalán, og flestir festu vextina í þrjú ár. Um þessar mundir er fastvaxtatímabilinu að ljúka hjá mörgum. Til áramóta munu fastir vextir losna á ríflega 3.200 íbúðalánum. Og það er bara hjá okkur í Landsbankanum.
Netbanki fyrirtækja
10. nóv. 2023
Bankakerfið er að opnast
Landsbankinn kynnti á dögunum nýjung í appinu sínu sem gerir fólki kleift að millifæra af reikningum í öðrum bönkum. Þessi þjónusta er alltaf háð samþykki viðskiptavina. Landsbankinn er fyrsti bankinn á Íslandi sem býður fólki að framkvæma aðgerðir í öðrum bönkum úr sínu appi.
9. nóv. 2023
Það styttist í jólin og jólastressið – eða hvað?
Jólin eiga að vera hátíð gleði og friðar en við upplifum oft að þau snúist að miklu leyti um neyslu og jólastress. Í aðdraganda jóla hættir mörgum til að sleppa sér í neyslunni og kaupa hluti sem hvorki þau sjálf, fjölskyldu eða vini vantar í raun og veru. Viljum við breyta þessu?
Sjálfbærnidagur 2023
8. sept. 2023
Sjálfbærnidagur 2023 – upptökur
Sjálfbærnidagur Landsbankans var haldinn í Grósku 7. september 2023. Á fundinum beindum við sjónunum að því sem íslensk fyrirtæki hafa verið að gera til að auka sjálfbærni í sínum rekstri og hvernig gera megi enn betur.
Myndlistarsýning
17. ágúst 2023
Hringrás – innsýn í listasafn Landsbankans
Sýningin Hringrás er úrval verka úr listasafni Landsbankans. Á sýningunni er kannað hvernig áhrif og innblástur þróast með mismunandi miðlum og í meðförum ólíkra kynslóða listafólks. Verkin endurspegla áherslu á ákveðnar listrænar hreyfingar, abstraktlist og geómetríska abstraksjón, hlutbundna og hlutlæga list, grafíska list (bæði ætimyndir og teikningar) og súrrealisma. Hringrás veitir innsýn í fjölbreytileika og breidd listasafns Landsbankans, þvert á framsetningarmáta og samhengi. 
Ungmenni úr Hinsegin félagsmiðstöðinni
10. ágúst 2023
„Baráttan er ekki búin fyrr en …“
Hinsegin félagsmiðstöðin verður með einn stærsta vagninn í Gleðigöngunni en hann er 14 metra langur og rúmar meira en 100 krakka. Þótt vagninn verði litríkur og glæsilegur er undirtónninn samt alvarlegur.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur