Hvaða leiðir eru færar? Sjálfbærnidagur Landsbankans 4. september
Sjálfbærnidagur Landsbankans verður haldinn miðvikudaginn 4. september kl. 9.00-11.30 í Grósku, Bjargargötu 1.
Húsið opnar og við bjóðum upp á morgunhressingu frá kl. 8.30. Að fundi loknum verður boðið upp á léttan hádegisverð.
Dagskrá
- Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Hringrás grænnar fjármögnunar - Dr. Halldór Björnsson, formaður vísindanefndar um loftslagsbreytingar og fagstjóri á Veðurstofu Íslands.
Loftslagsbreytingar: Afleiðingar og aðgerðir - Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips.
Sjálfbærni í ólgusjó - Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi.
Sjálfbær framtíð Festi - miklum áskorunum fylgja mikil tækifæri - Þorvaldur H. Gissurarson, forstjóri ÞG Verk.
Er sjálfbærni í byggingariðnaði raunhæft markmið? - Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds - Bílaleigu Akureyrar.
Orkuskipti í mótvindi
Auk þess fáum við örkynningar frá Livefood sem framleiðir grænkeraosta og Svepparíkinu sem ræktar sælkerasveppi og þróar hugbúnaðarlausn við svepparæktun til að vinna gegn loftslagsvanda. Að sjálfsögðu verður öllum boðið að smakka á framleiðslunni!
Fundarstjóri er Aðalheiður Snæbjarnardóttir, forstöðumaður sjálfbærni hjá Landsbankanum.