Landsbankinn fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum
Landsbankinn hefur fengið endurnýjaða viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum. Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans og Berglind Svavarsdóttir, varaformaður, tóku á móti viðurkenningunni fyrir hönd bankans við hátíðlega athöfn á Nauthóli þann 26. ágúst.
Bankinn hlaut viðurkenninguna fyrst árið 2014 og hefur hlotið hana árlega síðan þá. Viðurkenningin byggir á úttekt á stjórnarháttum bankans. Úttektin tekur mið af leiðbeiningum um góða stjórnarhætti sem eru gefnar út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Stjórnvísi er umsjónaraðili viðurkenningarferlisins.
Markmið verkefnisins er að stuðla að góðum stjórnarháttum með því að skýra hlutverk og ábyrgð stjórnenda fyrirtækja. Í ár hlutu alls 16 fyrirtæki viðurkenninguna.
Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans og Berglind Svavarsdóttir, varaformaður, tóku á móti viðurkenningunni fyrir hönd bankans við hátíðlega athöfn á Nauthóli.