Vaxtagreiðslur og millifærslur um áramót
Vextir bankareikninga
Vaxtagreiðslur bankareikninga fyrir árið 2018 og skuldfærsla vegna vaxta á yfirdráttarlánum fyrir desembermánuð 2018 fara fram þann 31. desember. Útreikningur miðast við stöðuna á reikningum eins og hún er um kl. 16.00 þann dag.
Millifærslur
Allar millifærslur og aðrar greiðsluaðgerðir sem framkvæmdar eru á milli kl. 16.00 og 21.00 þann 31. desember 2018, tilheyra árinu 2018 og verður tekið tillit til þeirra við næsta útreikning vaxta.
Allar færslur sem framkvæmdar eru eftir kl. 21.00 þann 31.12.2018 bókast 2. janúar og tilheyra árinu 2019.
Stórgreiðslur
Stórgreiðslukerfið lokar kl. 12.00 á hádegi þann 31. desember 2018. Eftir þann tíma er ekki hægt að millifæra á milli banka hærri fjárhæðir en 10.000.000 kr.
Launagreiðslur
Viðskiptavinum Landsbankans sem greiða laun er bent á að senda bankanum framvirka launaskrá milli jóla og nýárs, með greiðsludag 31. desember. Ef sú leið er ekki valin er best að viðskiptvinir greiði launin strax um morgunin þann 31. desember.