Með nýju kortaappi Landsbankans getur þú borgað með símanum
Kortaapp Landsbankans – Kort – er aðgengilegt í Google Play Store. Fyrst um sinn verður appið aðeins í boði fyrir farsíma með Android-stýrikerfi. Farsímum með IOS-stýrikerfi verður bætt við um leið og Apple opnar fyrir greiðslur með farsímum á Íslandi.
Appið er þróað af Visa og hefur verið í notkun í Bandaríkjunum og víðar um nokkurt skeið. Landsbankinn er fyrsti bankinn á Íslandi sem býður upp á þessa þjónustu og með þeim fyrstu í Evrópu.
Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir: „Nýja kortaappið er örugg og hraðvirk leið til að greiða. Við hvetjum fólk til að koma í viðskipti í gegnum Landsbankaappið og prófa bæði kortalausnina og þær fjölmörgu nýjungar sem við höfum sett í loftið undanfarið.“
Reiknað er með að prófunum á kortaappinu ljúki í næstu viku. Meðan á prófunum stendur er ekki öruggt að allir snertilausir posar taki við greiðslum með appinu og í sumum tilvikum taka þeir aðeins við greiðslum sem eru undir 5.000 krónum. Ný uppfærsla er væntanleg á næstu dögum og verða upphæðamörk þá fjarlægð og ekkert hámark á greiðslum með símanum. Allar ábendingar um kortaappið má senda á landsbankinn@landsbankinn.is.
Nánari upplýsingar um virkni kortaappsins, öryggismál og fleira eru á vef Landsbankans.