8. ágúst 2022 - Greiningardeild
Vikan framundan
- Í dag birtir Seðlabankinn útreikning á raungengi í júlí og flugfélögin tvö, Icelandair og Play, birta flutningstölur fyrir júlí.
- Á þriðjudag birta Lánamál ríkisins markaðsupplýsingar fyrir júlímánuð og Skeljungur birtir einnig ársfjórðungsuppgjör.
- Á miðvikudag gefur Ferðamálastofa út talningu ferðmanna um Leifsstöð í júlí og Vinnumálastofnun birtir tölur um skráð atvinnuleysi.
Mynd vikunnar
Af þeim 22 félögum sem skráð eru á aðallista kauphallarinnar voru 19 sem hækkuðu í verði í júlí en einungis 3 sem lækkuðu. Mesta hækkunin var hjá Icelandair Group sem hækkaði um ríflega þriðjung í mánuðinum. Næstmesta hækkunin var hjá Eimskip sem hækkaði um rúmlega 20%. Þriðja mesta hækkunin var síðan hjá Origo, 16,4%. Þrátt fyrir þessa kröftugu hækkun nú í júlí er OMXI10 vísitalan enn tæplega 16% lægri en hún var í lok síðasta árs.
Efnahagsmál
- Hlutfall atvinnulausra var 4% í júní 2022 samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar.
- Hagstofan birti tölur um nýskráningar félaga.
Fjármálamarkaðir
- Sýn boðaði til hluthafafundar seinna í mánuðinum vegna breytinga sem hafa orðið á hluthafahópi félagsins.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á
19. des. 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í desember, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga stendur því í stað í 4,8%. Við eigum enn von á að verðbólga hjaðni næstu mánuði og verði komin niður í 3,9% í mars.
17. des. 2024
Kortavelta landsmanna færist enn í aukana þrátt fyrir hátt vaxtastig. Innlán heimila hafa vaxið og yfirdráttur ekki aukist. Erlendir ferðamenn hér á landi eyða líka þó nokkuð fleiri krónum en á sama tíma í fyrra.
16. des. 2024
Seðlabankinn hóf vaxtalækkunarferlið í október með 25 punkta lækkun og fylgdi því eftir með 50 punkta lækkun í nóvember. Þetta gerði bankinn rétt fyrir mestu neyslutíð ársins, með öllum sínum tilboðsdögum og jólainnkaupum.
16. des. 2024
Í vikunni fáum við vísitölur íbúðaverðs og leiguverðs frá HMS og vísitölu neysluverðs frá Hagstofunni en við gerum ráð fyrir lítilsháttar hjöðnun verðbólgu úr 4,8% í 4,7%. Um 9,3% fleiri erlendir ferðamenn komu til landsins í nóvember en á sama tíma í fyrra og skráð atvinnuleysi var 0,3 prósentustigum meira en það var í nóvember í fyrra. Seðlabanki Evrópu og Seðlabanki Sviss lækkuðu vexti í síðustu viku og það er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Bandaríkjanna og Englandsbanka í þessari viku.
12. des. 2024
Um 162.000 ferðamenn komu til landsins í nóvember, samkvæmt talningu ferðamálastofu. Ferðamenn voru 9,3% fleiri en á sama tíma í fyrra og hafa aldrei verið fleiri í nóvembermánuði. Gagnavandamál voru áberandi í ár og tölur um fjölda ferðamanna, erlenda kortaveltu og gistinætur útlendinga hafa allar verið endurskoðaðar á árinu.
9. des. 2024
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,35% á milli mánaða í desember og að verðbólga hjaðni úr 4,8% í 4,7%. Flugfargjöld til útlanda og húsnæðisliðurinn hafa mest áhrif til hækkunar í mánuðinum. Við eigum von á áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 3,9% í mars á næsta ári.
9. des. 2024
Í vikunni fáum við tölur um fjölda ferðamanna sem komu hingað til lands í nóvember og skráð atvinnuleysi í október. Í síðustu viku birti Seðlabankinn tölur um viðskiptajöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórðungi þar sem í ljós kom að minni afgangur var en á sama tíma í fyrra. Seðlabankinn birti einnig fundargerð peningastefnunefndar sem sýnir að allir nefndarmenn voru sammála um að lækka vexti um 0,5 prósentustig í síðasta mánuði.
5. des. 2024
Afgangur mældist á viðskiptum við útlönd á þriðja ársfjórðungi. Það var halli á vöruskiptum, frumþáttatekjum og rekstrarframlögum, sem afgangur á þjónustuviðskiptum náði þó að vega upp, enda háannatími ferðaþjónustu. Það sem af er ári mælist samt það mikill halli að nær öruggt er að það mælist halli á árinu í heild.
3. des. 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
2. des. 2024
Í síðustu viku bárust upplýsingar um að verðbólga hefði lækkaði úr 5,1% niður í 4,5% í nóvember og að landsframleiðslan hefði dregist saman um 0,5% að raunvirði á milli ára á þriðja ársfjórðungi. Í vikunni birtir Seðlabankinn tölur um viðskiptajöfnuð við útlönd, fundargerð peningastefnunefndar og yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar.