Áfram hækk­ar íbúða­verð

Enn virðist talsverður kraftur í íbúðamarkaði höfuðborgarsvæðisins þó hækkunin milli mánaða nú sé örlítið minni en áður. Íbúðaverð hækkaði um 1,4% í júní eftir 1,6% hækkun í maí og 2,7% í apríl. Spenna virðist þó áfram mikil, sér í lagi á markaði fyrir sérbýli, þar sem ríflega 40% eigna seljast yfir ásettu verði. Seðlabankinn hefur sent skýr skilaboð um að hækkanirnar séu orðnar áhyggjuefni.
Íbúðir
21. júlí 2021 - Greiningardeild

Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali um 1,4% milli maí og júní. Fjölbýli hækkaði um 1,4% og sérbýli um 1,7%. Árshækkun mælist nú 16% og hefur ekki verið hærri síðan í október 2017. Hækkanir á íbúðaverði eru nú orðnar áþekkar því sem sást á árunum 2016 og 2017 og hefur spenna aukist nokkuð umfram það sem spár gerðu ráð fyrir.

Hagfræðideild gaf út þjóðhags- og verðbólguspá í maí sl. þar sem því var spáð að íbúðaverð myndi hækka um 10,5% milli ára (breyting milli ársmeðaltala). Ólíklegt þykir að sú spá haldi miðað við þær hækkanir sem þegar hafa orðið. Spáin gerði þó ráð fyrir að Seðlabankinn myndi beita þjóðhagsvarúðartækjum sínum til þess að slá á þá spennu sem nú ríkir, sem hann og gerði með ákvörðun sinni í lok júní um að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána úr 85% af virði fasteignar niður í 80%. Við teljum ólíklegt að sú aðgerð ein og sér dugi til þess að slá á þá miklu eftirspurn sem nú virðist ríkja.

Samkvæmt gögnum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun seljast nú um 43% íbúða í sérbýli yfir því verði sem þær eru auglýstar á. Það er hæsta hlutfall sem hefur mælst á höfuðborgarsvæðinu frá upphafi mælinga í janúar 2013. Hlutfallið mælist 37% í fjölbýli sem er einnig hæsta hlutfall sem hefur sést. Slíkt bendir til að við gætum enn átt eftir að sjá einhverjar hækkanir koma fram á íbúðamarkaði.

Lesa Hagsjána í heild:

Hagsjá: Áfram hækkar íbúðaverð

Þú gætir einnig haft áhuga á
Flugvöllur, Leifsstöð
19. des. 2024
Verðbólga stendur í stað á milli mánaða
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í desember, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga stendur því í stað í 4,8%. Við eigum enn von á að verðbólga hjaðni næstu mánuði og verði komin niður í 3,9% í mars.
Símagreiðsla
17. des. 2024
Kröftug kortavelta í aðdraganda jóla 
Kortavelta landsmanna færist enn í aukana þrátt fyrir hátt vaxtastig. Innlán heimila hafa vaxið og yfirdráttur ekki aukist. Erlendir ferðamenn hér á landi eyða líka þó nokkuð fleiri krónum en á sama tíma í fyrra. 
Greiðsla
16. des. 2024
Munu lægri vextir leiða til meiri neyslu?
Seðlabankinn hóf vaxtalækkunarferlið í október með 25 punkta lækkun og fylgdi því eftir með 50 punkta lækkun í nóvember. Þetta gerði bankinn rétt fyrir mestu neyslutíð ársins, með öllum sínum tilboðsdögum og jólainnkaupum.
Flutningaskip við Vestmannaeyjar
16. des. 2024
Vikubyrjun 16. desember 2024
Í vikunni fáum við vísitölur íbúðaverðs og leiguverðs frá HMS og vísitölu neysluverðs frá Hagstofunni en við gerum ráð fyrir lítilsháttar hjöðnun verðbólgu úr 4,8% í 4,7%. Um 9,3% fleiri erlendir ferðamenn komu til landsins í nóvember en á sama tíma í fyrra og skráð atvinnuleysi var 0,3 prósentustigum meira en það var í nóvember í fyrra. Seðlabanki Evrópu og Seðlabanki Sviss lækkuðu vexti í síðustu viku og það er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Bandaríkjanna og Englandsbanka í þessari viku.
Ferðamenn á jökli
12. des. 2024
Aldrei fleiri ferðamenn í nóvembermánuði
Um 162.000 ferðamenn komu til landsins í nóvember, samkvæmt talningu ferðamálastofu. Ferðamenn voru 9,3% fleiri en á sama tíma í fyrra og hafa aldrei verið fleiri í nóvembermánuði. Gagnavandamál voru áberandi í ár og tölur um fjölda ferðamanna, erlenda kortaveltu og gistinætur útlendinga hafa allar verið endurskoðaðar á árinu.
Flugvél
9. des. 2024
Spáum 4,7% verðbólgu í desember
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,35% á milli mánaða í desember og að verðbólga hjaðni úr 4,8% í 4,7%. Flugfargjöld til útlanda og húsnæðisliðurinn hafa mest áhrif til hækkunar í mánuðinum. Við eigum von á áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 3,9% í mars á næsta ári.
9. des. 2024
Vikubyrjun 9. desember 2024
Í vikunni fáum við tölur um fjölda ferðamanna sem komu hingað til lands í nóvember og skráð atvinnuleysi í október. Í síðustu viku birti Seðlabankinn tölur um viðskiptajöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórðungi þar sem í ljós kom að minni afgangur var en á sama tíma í fyrra. Seðlabankinn birti einnig fundargerð peningastefnunefndar sem sýnir að allir nefndarmenn voru sammála um að lækka vexti um 0,5 prósentustig í síðasta mánuði.
Flutningaskip
5. des. 2024
Afgangur á 3. ársfjórðungi, en að öllum líkindum halli á árinu
Afgangur mældist á viðskiptum við útlönd á þriðja ársfjórðungi. Það var halli á vöruskiptum, frumþáttatekjum og rekstrarframlögum, sem afgangur á þjónustuviðskiptum náði þó að vega upp, enda háannatími ferðaþjónustu. Það sem af er ári mælist samt það mikill halli að nær öruggt er að það mælist halli á árinu í heild.
3. des. 2024
Fréttabréf Greiningardeildar 3. desember 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Sendibifreið og gámar
2. des. 2024
Vikubyrjun 2. desember 2024
Í síðustu viku bárust upplýsingar um að verðbólga hefði lækkaði úr 5,1% niður í 4,5% í nóvember og að landsframleiðslan hefði dregist saman um 0,5% að raunvirði á milli ára á þriðja ársfjórðungi. Í vikunni birtir Seðlabankinn tölur um viðskiptajöfnuð við útlönd, fundargerð peningastefnunefndar og yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur