Karítas til liðs við Landsbankann
Karítas Ríkharðsdóttir hefur gengið til liðs við Landsbankann sem sérfræðingur í samskiptum.
Karítas kemur frá Morgunblaðinu og mbl.is þar sem hún starfaði sem blaðamaður auk þess að vera einn þáttastjórnenda Dagmála. Áður starfaði hún sem aðstoðarmaður þingflokks Framsóknarflokksins. Karítas er með B.Sc. gráðu í sjávarútvegsfræðum frá Háskólanum á Akureyri.
Karítas mun starfa í samskiptateyminu sem er hluti af Samfélagi Landsbankans en undir sviðið falla einnig mannauðsmál, markaðsmál, fræðsla, sjálfbærni og hagfræðigreining.