Upp­gjör Lands­bank­ans fyr­ir fyrri helm­ing árs­ins 2024

Hagnaður Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2024 nam 16,1 milljarði króna eftir skatta, þar af 9,0 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Arðsemi eiginfjár var 10,5% samanborið við 10,3% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
18. júlí 2024
  • Hagnaður Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2024 nam 16,1 milljarði króna eftir skatta, þar af 9,0 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi.
  • Arðsemi eiginfjár var 10,5% samanborið við 10,3% á sama tímabili árið áður.
  • Vaxtamunur sem hlutfall af meðalstöðu heildareigna nam 2,9% og vaxtamunur heimila á tímabilinu var 2%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 29,1 milljarður króna og hreinar þjónustutekjur voru 5,4 milljarðar króna.
  • Virðisbreytingar útlána voru neikvæðar um 3,5 milljarða króna, en stór hluti virðisbreytinga eru vegna óvissu um fjárhagslegar afleiðingar náttúruhamfaranna á Reykjanesskaga.
  • Kostnaðarhlutfall er 33,1% samanborið við 36,1% á sama tímabili árið 2023.
  • Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 24,4% en fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands gerir 20,4% heildarkröfu um eiginfjárgrunn.
  • Samningur um kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. af Kviku banka var undirritaður 30. maí.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:

„Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu sex mánuði ársins er sterkt og öll fjárhagsleg markmið sem bankinn hafði sett sér náðust. Arðsemi er í samræmi við markmið og kostnaðarhlutfallið er með því lægsta sem gerist. Vaxtatekjur eru sterkar en vel hefur tekist til við ávöxtun á lausafé bankans.

Stærsti viðburður síðasta fjórðungs er undirritun á samningi um kaup bankans á TM en markmiðið með kaupunum er að bjóða viðskiptavinum fjölbreyttari þjónustu, fjölga tekjustoðum og auka verðmæti bankans fyrir hluthafa. Kaupin bíða nú samþykkis frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og Samkeppniseftirlitinu.

Þjónustutekjur lækka eilítið, eftir sérlega góðan árangur á sama tímabili í fyrra, en leitnin er upp á við. Kraftmikil þróun og nýjungar í appi, ásamt fjölgun fyrirtækja í viðskiptum skila bankanum auknum tekjum, hvort sem er í gegnum færsluhirðingu eða aðra þjónustu. Við erum stolt af þeim glæsilega árangri sem hefur náðst við að innleiða nýja þjónustu í Landsbankaappið. Samhliða hefur öryggi verið aukið með nýrri neyðarþjónustu þar sem viðskiptavinir geta lokað á allan aðgang á augabragði, bæði að greiðslukortum, appi og netbanka og ekki er hægt að opna aftur nema hafa samband við bankann.

Við leggjum áherslu á að einfalda viðskiptavinum lífið. Árangur okkar birtist í góðu uppgjöri, hagkvæmum rekstri og góðum skilningi á flóknu rekstrarumhverfi sem reglulega er rýnt af eftirlitsaðilum. Við höfum fjölgað tekjustoðum og bjóðum mjög fjölbreytta bankaþjónustu sem flestir viðskiptavinir nýta sér daglega eða oftar. Ég er ánægð með hversu vel starfsfólki bankans tekst að eiga við ólíkar áskoranir og breytingar á starfsumhverfi bankans. Ekkert okkar missir sjónar á því allra mikilvægasta, að viðskiptavinir séu ánægðir og fái hagkvæma og góða þjónustu, því það mun skila okkur árangri til framtíðar.“

Helstu atriði úr rekstri og efnahag á öðrum ársfjórðungi (2F) 2024

Rekstur:

  • Hagnaður á 2F 2024 nam 9,0 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 6,7 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2023.
  • Arðsemi eiginfjár var 11,7% á 2F 2024, samanborið við 9,5% á sama tímabili 2023.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 14,8 milljarðar króna en þær námu 14,5 milljörðum króna á sama tímabili 2023.
  • Hreinar þjónustutekjur námu 2,6 milljörðum króna en voru 2,7 milljarðar króna á 2F 2023.
  • Virðisbreyting útlána og krafna var neikvæð um 746 milljónir króna á 2F 2024.
  • Í maí birti EFTA-dómstóllinn ráðgefandi álit um túlkun á tilteknum ákvæðum tilskipana Evrópusambandsins er varða fasteignalán og skilmála í neytendasamningum. Álitið var veitt að beiðni héraðsdóms í tveimur dómsmálum, annað þeirra höfðað gegn Landsbankanum, og varðar forsendur fyrir ákvörðun vaxta á fasteignalánum. Umrætt dómsmál gagnvart Landsbankanum verður nú tekið til áframhaldandi meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
  • Landsbankinn og Kvika undirrituðu samkomulag um kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. þann 30. maí 2024, í kjölfar skuldbindandi kauptilboðs sem Landsbankinn lagði fram þann 15. mars sl. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Kaupverð TM er 28,6 milljarðar króna en endanleg greiðsla fyrir félagið er háð kaupverðsaðlögun á þeim degi sem bankinn tekur við rekstri félagsins.

Efnahagur:

  • Útlán jukust um 7% frá áramótum, eða um 107,7 milljarða króna. Útlán til einstaklinga jukust um 23,5 milljarða króna. Útlán til fyrirtækja jukust um 84,2 milljarða króna, en þar af eru gengisáhrif tæpur 1 milljarður króna til lækkunar.
  • Innlán jukust um 9,5% frá áramótum, eða um tæpa 100 milljarða króna. Innstæður á sparireikningum í appi jukust um 48%.
  • Í lok annars ársfjórðungs hafði meirihluti viðskiptavina í Grindavík með íbúðalán hjá bankanum kosið að selja Fasteignafélaginu Þórkötlu ehf. fasteignir sínar. Afgreiðslu á viðskiptum á milli þessara aðila var ekki að fullu lokið á fjórðungnum en þá var búið að greiða upp íbúðalán til 398 einstaklinga sem eru í viðskiptum við bankann og veita fasteignafélaginu lán að fjárhæð 10,3 milljarðar króna.
  • Bankinn fylgist náið með og stýrir lausafjáráhættu sinni í heild, í erlendum myntum og í íslenskum krónum. Lausafjárhlutfall bankans var 177% í lok 2F 2024, samanborið við 165% í lok 2F 2023.

Lykiltölur samstæðunnar

Rekstur

Fjárhæðir í milljónum króna

  1H 2024 1H 2023 Breyting Breyting% 2F 2024 2F 2023 Breyting Breyting%
Hagnaður tímabilsins 16.121 14.473 1.648 11,4% 8.965 6.717 2.248 33,5%
Hreinar vaxtatekjur 29.135 27.535 1.600 5,8% 14.752 14.469 283 2,0%
Hreinar þjónustutekjur 5.378 5.751 (373) (6,5%) 2.642 2.703 (61) (2,3%)
Aðrar rekstrartekjur 2.874 1.191 1.683 141,3% 2.432 (15) 2.447
Rekstrartekjur 37.387 34.477 2.910 8,4% 19.826 17.157 2.669 15,6%
Laun og launatengd gjöld (8.423) (8.313) (110) 1,3% (4.190) (4.194) 4 (0,1%)
Annar rekstrarkostnaður (5.077) (4.725) (352) 7,4% (2.491) (2.370) (121) 5,1%
Rekstrargjöld (14.736) (14.158) (578) 4,1% (7.317) (7.114) (203) 2,9%

Efnahagur

Fjárhæðir í milljónum króna

  30.6.2024 31.12.2023 Breyting Breyting%
Heildareignir 2.075.463 1.960.776 114.687 5,8%
Útlán til viðskiptavina 1.738.585 1.630.894 107.691 6,6%
Innlán frá viðskiptavinum 1.148.431 1.048.537 99.894 9,5%
Eigið fé 303.262 303.754 (492) (0,2%)

Kennitölur

  1H 2024 1H 2023 2F 2024 2F 2023
Arðsemi eigin fjár eftir skatta 10,5% 10,3% 11,7% 9,5%
Vaxtamunur í hlutfalli af meðalstöðu eigna 2,9% 2,9% 2,9% 3,0%
Rekstrarkostnaður í hlutfalli af meðalstöðu eigna 1,3% 1,4% 1,3% 1,4%
Kostnaður sem hlutfall af tekjum (K/T)* 33,1% 36,1% 32,5% 39,5%
  30.06.2024 31.03.2024 31.12.2023 31.12.2022
Eiginfjárhlutfall alls 24,4% 24,9% 23,6% 24,7%
Fjármögnunarþekja erlendra mynta 138% 157% 145% 132%
Heildarlausafjárþekja 177% 272% 181% 134%
Lausafjárþekja erlendra mynta EUR (LCR FX til og með 2022) 447% 947% 1.499% 351%
Vanskilahlutfall (>90 daga) 0,5% 0,7% 0,3% 0,2%
Meðalstöðugildi 824 824 849 843
Stöðugildi í lok tímabils 824 826 817 813

*K/T - Rekstrargjöld alls/(Hreinar rekstrartekjur - virðisbreytingar útlána).

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
7. júní 2024
S&P segir kaup Landsbankans á TM fjölga tekjustoðum og hafa hófleg áhrif á eiginfjárstöðu
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings (S&P) telur að kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. (TM) skapi tækifæri fyrir bankann til að festa sig í sessi á íslenskum tryggingamarkaði, breikka þjónustuframboð til viðskiptavina og auka fjölbreytni í tekjustoðum bankans til framtíðar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem S&P birti 5. júní 2024.
Austurbakki
30. maí 2024
Samningur um kaup Landsbankans á TM undirritaður
Samningur um kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. af Kviku banka var undirritaður í dag.
Austurbakki
2. maí 2024
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024
Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 nam 7,2 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 9,3% samanborið við 11,1% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
19. apríl 2024
Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2024
Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var 19. apríl 2024, samþykkti að greiða 16.535 milljónir króna í arð til hluthafa.
Austurbakki
4. apríl 2024
S&P hækkar lánshæfismat Landsbankans í BBB+
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði hækkað lánshæfismat Landsbankans. Hækkunin nemur einu þrepi og er lánshæfismatið því BBB+ með stöðugum horfum.
Austurbakki
27. mars 2024
Aðalfundur Landsbankans 2024 - fundarboð
Aðalfundur Landsbankans verður haldinn föstudaginn 19. apríl 2024 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
Austurbakki
22. mars 2024
Bankasýslan var upplýst um áform Landsbankans um að kaupa TM
Bankaráð Landsbankans hefur svarað bréfi Bankasýslu ríkisins frá 18. mars sl. þar sem óskað er eftir tilteknum upplýsingum um kaup bankans á TM tryggingum.
Austurbakki
19. mars 2024
Aðalfundi Landsbankans frestað til 19. apríl
Á fundi bankaráðs Landsbankans þann 19. mars 2024 var ákveðið að fresta aðalfundi bankans, sem vera átti miðvikudaginn 20. mars 2024. Að höfðu samráði við Bankasýslu ríkisins var ákveðið að halda aðalfundinn föstudaginn 19. apríl.
Austurbakki
17. mars 2024
Tilboð Landsbankans í TM samþykkt
Landsbankinn og Kvika banki hafa komist að samkomulagi um að hefja einkaviðræður um kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. („TM“) á grundvelli kauptilboðs sem bankinn lagði fram í allt hlutafé félagsins þann 15. mars sl. Möguleg kaup eru m.a. háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins og fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Austurbakki
7. mars 2024
Aðalfundur Landsbankans 2024
Aðalfundur Landsbankans verður haldinn miðvikudaginn 20. mars 2024 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur