Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var 19. mars 2025, samþykkti að greiða 18.892 milljónir króna í arð til hluthafa.
Arðgreiðslan samsvarar um 50% af hagnaði ársins 2024. Greiðslan verður tvískipt og er fyrri gjalddagi 26. mars 2025 en sá seinni 17. september 2025. Heildararðgreiðslur bankans á árabilinu 2013-2025 nema þar með um 210,6 milljörðum króna.
Á fundinum, sem var haldinn í Reykjastræti 6, flutti Jón Þorvarður Sigurgeirsson, formaður bankaráðs skýrslu bankaráðs fyrir árið 2024. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri, fjallaði um rekstur, stefnu og starfsemi bankans á liðnu starfsári.
Ársreikningur bankans var samþykktur og sömuleiðis tillögur um starfskjarastefnu og kjör bankaráðsmanna. Fundurinn kaus ríkisendurskoðanda sem endurskoðanda félagsins fyrir rekstrarárið 2025. Í samræmi við heimildir ríkisendurskoðanda til að útvista verkefnum sínum hefur hann tilnefnt í framhaldi af útboði um verkefnið endurskoðunarfyrirtækið PricewaterhouseCoopers ehf. til að annast endurskoðun ársreikninga félagsins fyrir rekstrarárið 2025.
Eftirtaldir einstaklingar voru endurkjörnir aðal- og varamenn í bankaráð Landsbankans fram til næsta aðalfundar:
Aðalmenn
- Jón Þorvarður Sigurgeirsson (formaður)
- Eva Halldórsdóttir
- Kristján Þ. Davíðsson
- Rebekka Jóelsdóttir
- Steinunn Þorsteinsdóttir
- Þór Hauksson
- Örn Guðmundsson
Varamenn
- Sigurður Jón Björnsson
- Stefanía G. Halldórsdóttir
Þá var Hjörleifur Pálsson kjörinn sem utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd bankans.









