Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Hækkunin er sú fjórða í röð, en vísitalan hækkaði um 0,8% í mars og apríl og um 1,9% í febrúar. Nýrri vísitölu íbúðaverðs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er skipt bæði eftir tegundum húsnæðis, þ.e. fjölbýli eða sérbýli og staðsetningu, þ.e. á höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni. Í maí hækkaði íbúðaverð um 1,8% á landsbyggðinni en um 1,2% á höfuðborgarsvæðinu.
Íbúðaverð hækkað um 8,4% á tólf mánuðum
Á síðustu 12 mánuðum hefur íbúðaverð hækkað þó nokkuð meira en verðlag í landinu almennt. Í maí hafði verðlag hækkað um 6,2% á síðustu 12 mánuðum en íbúðaverð um 8,4%. Árshækkun vísitölunnar hefur aukist statt og stöðugt frá lægsta punkti í 0,8% í júlí í fyrra.
Raunverð 4% hærra en á sama tíma í fyrra
Árshækkun raunverðs mælist nú 4,0% og hefur ekki verið meiri síðan í janúar 2023. Í mars í fyrra tók raunverð að lækka og lækkunin varð mest 6% á ársgrundvelli í júlí í fyrra. Raunverð tók svo aftur við sér þegar verðbólga fór að hjaðna á sama tíma og líf færðist yfir íbúðamarkað. Raunverð fæst með því að taka tillit til verðbólgu, en til þess notum við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Raunverð lækkar þannig á milli ára ef árshækkun íbúðaverðs er minni en árshækkun vísitölu neysluverðs án húsnæðis.
Kaupsamningum snarfjölgar
Undirrituðum kaupsamningum fjölgar verulega í maí miðað við sama tíma í fyrra. Eftir samfellda fækkun á milli ára frá miðju ári 2021 tók kaupsamningum að fjölga aftur síðastliðið haust. Fjölgunin á milli ára hefur verið sífellt meiri með hverjum mánuðinum sem líður og í maí voru 150% fleiri kaupsamningar undirritaðir á höfuðborgarsvæðinu en í sama mánuði í fyrra.
Verðtryggð lántaka áberandi
Vaxtastigið hefur haft áþreifanleg áhrif á eftirspurn eftir ólíkum tegundum íbúðalána. Vinsældir verðtryggðra lána tóku að aukast við upphaf síðasta árs, þegar vaxtastig var farið að hafa veruleg áhrif á afborganir af óverðtryggðum lánum. Lántakar með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum hófu að greiða upp lánin og í rúmt ár hafa mun hærri upphæðir farið í uppgreiðslu á slíkum lánum en í töku nýrra lána. Á sama tíma hafa verðtryggð lán á breytilegum vöxtum verið langvinsælust, þótt einhverjir virðist enn festa vexti á nýjum verðtryggðum lánum.
Nýjustu gögn af íbúðamarkaði bera þess merki að eftirspurn eftir húsnæði sé mikil, þrátt fyrir hátt vaxtastig. Ýmsar skýringar kunna að liggja að baki hækkandi verði og aukinni veltu. Líklega spila Grindavíkuráhrifin stórt hlutverk, auk þess sem þættir eins og væntingar um vaxtalækkanir og þörf á húsnæði hljóta að hafa áhrif. Haldi þessi þróun áfram er ekki ólíklegt að íbúðaverð hækki þó nokkuð á þessu ári og það umfram almennt verðlag.
Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Hagfræðideildar Landsbankans hf. (hagfraedideild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.
Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Hagfræðideild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.