6. janúar 2025
Vikan framundan
- Á morgun verða birtar verðbólgutölur fyrir evrusvæðið.
- Á föstudag birtir Vinnumálastofnun skráð atvinnuleysi í desember. Einnig verða birtar tölur um atvinnuleysi í Bandaríkjunum.
- Í vikunni fara fram verðmælingar vegna vísitölu neysluverðs, en Hagstofan birtir mælinguna fimmtudaginn 30. janúar.
Mynd vikunnar
Úrvalsvísitalan hækkaði um tæp 16% í fyrra. Þetta er nokkuð meiri hækkun en við sjáum á helstu hlutabréfavísitölum á Evrópu. Eurostoxx 600 og FTSE 500 hækkuðu um rúmlega 5% og OMX Nordic 40 lækkaði um tæp 2%. Ólíkt Evrópu voru nokkuð ríflegar hækkanir í Bandaríkjunum, drifnar áfram af stóru tæknifyrirtækjunum.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Hagstofan birti niðurstöður úr vinnumarkaðsrannsókn sem fór fram í nóvember síðastliðnum.
- Seðlabankinn birti fundargerð fjármálastöðugleikanefndar frá síðasta fundi nefndarinnar sem fór fram 26. nóvember og 2. og 3. desember 2024.
- Lánamál ríkisins birtu ársáætlun fyrir 2025 og ársfjórðungsáætlun fyrir 1. ársfjórðung, Arion banki birti útgáfuáætlun fyrir 2025 og Lánasjóður sveitarfélaga birtu útboðsdagatal fyrir 2025.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á

21. feb. 2025
Íbúðaverð hækkaði mun meira í janúar en síðustu mánuði. Íbúðaverð hefur verið nokkuð sveiflukennt og óútreiknanlegt undanfarið en stökkið í janúar skýrist af verðhækkun á sérbýli. Íbúðum á sölu hefur fjölgað hratt síðustu mánuði og birgðatími lengst. Grindavíkuráhrifin hafa fjarað út að langmestu leyti og hækkanir á verðtryggðum vöxtum kældu markaðinn undir lok síðasta árs.

19. feb. 2025
Um 122 þúsund ferðamenn komu til landsins í janúar, samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Ferðamenn voru 5,8% færri en á sama tíma í fyrra sem er á skjön við þróun síðustu mánaða, en allt frá því í júlí sl. hefur ferðamönnum fjölgað á milli ára. Þótt ferðamönnum hafi fækkað í janúar hélt kortavelta þeirra áfram að aukast.

18. feb. 2025
Enn eru merki um að landsmenn hafi svigrúm til neyslu þrátt fyrir langvarandi hávaxtastig. Kortavelta eykst með hverjum mánuðinum, utanlandsferðir í janúar hafa aldrei verið jafnmargar og í ár og samt virðast yfirdráttarlán ekki hafa færst í aukana. Á sama tíma hefur slaknað þó nokkuð á spennu á vinnumarkaði, eftirspurn eftir vinnuafli hefur dvínað og atvinnuleysi tók stökk í janúar þegar það fór yfir 4%.

17. feb. 2025
Erlendum ferðamönnum í janúar fækkaði um 5,8% á milli ára samkvæmt talningu Ferðamálastofu sem birt var í síðustu viku. Einnig fóru fram verðmælingar Hagstofunnar vegna vísitölu neysluverðs í febrúar og spáum við því að verðbólga hjaðni niður í 4,3%. Í þessari viku fáum við kortaveltutölur frá Seðlabankanum, vísitölur íbúða- og leiguverðs frá HMS auk þess sem fundargerð peningastefnunefndar verður birt.

13. feb. 2025
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,98% á milli mánaða í febrúar og að verðbólga hjaðni úr 4,6% í 4,3%. Við búumst við áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 3,7% í maí.

10. feb. 2025
Peningastefnunefnd lækkaði vexti um 0,5 prósentustig í síðustu viku. Í þessari viku koma tölur um skráð atvinnuleysi og fjölda brottfara frá Leifsstöð auk þess sem Hagstofan framkvæmir verðkannanir vegna vísitölu neysluverðs. Uppgjörstímabilið í Kauphöllinni er síðan enn í fullum gangi.

3. feb. 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

3. feb. 2025
Halli af vöruviðskiptum jókst í fyrra, en ekki með sama hraða og síðustu tvö ár þar á undan. Að það hægi á aukningunni gæti verið merki um að jafnvægi sé að aukast í hagkerfinu, en á móti kemur að innflutningsverðmæti hafa aldrei verið meiri sem gæti verið merki um aukin umsvif.

3. feb. 2025
Verðbólga lækkaði á milli mánaða í janúar, úr 4,8% í 4,6%. Við eigum von á að Seðlabankinn lækki vexti um 0,5 prósentustig á miðvikudaginn. Fyrstu uppgjör fyrir árið 2024 komu í síðustu viku, en uppgjörstímabilið heldur áfram í þessari viku.

30. jan. 2025
Við spáum 0,5 prósentustiga vaxtalækkun í næstu viku. Verðbólga mældist 4,6% í janúar. Hún hjaðnaði í takt við spá okkar og hefur þokast niður um 0,5 prósentustig frá síðustu vaxtaákvörðun. Hægt hefur á íbúðaverðshækkunum og verðbólguvæntingar virðast stöðugri en áður. Laun hafa hækkað mun minna en áður og vinnumarkaður hefur leitað í eðlilegra horf.