Vikubyrjun 24. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% í maí og vísitala leiguverðs um 3,2% samkvæmt gögnum sem bárust í síðustu viku. Englandsbanki hélt vöxtum óbreyttum á meðan svissneski seðlabankinn lækkaði vexti um 0,25 prósentustig. Eftirtektarverðasta innlenda hagtalan sem birtist í þessari viku er eflaust vísitala neysluverðs sem Hagstofan birtir á fimmtudaginn.
![Paprika](https://images.prismic.io/landsbankinn/a06f0e51-f8d7-4614-95bf-d3f9a1b06eba_Paprika-iStock-518590344-2020.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,32,2020,1136&q=50)
24. júní 2024
Vikan framundan
- Í dag birtir Hagstofan launavísitölu fyrir maí.
- Á fimmtudag birtir Hagstofan júnímælingu vísitölu neysluverðs hér á landi. Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,47% á milli mánaða og að ársverðbólga lækki við það úr 6,2% í 5,8%.
- Ölgerðin birtir uppgjör fyrir tímabilið 1. mars - 31. maí 2024.
- Á föstudag birtir Seðlabankinn Hagvísa. Hagar birta uppgjör fyrir tímabilið 1. mars - 31. maí 2024.
Mynd vikunnar
Í fyrra kostaði matarkarfan um 36% meira hér á landi en að meðaltali í Evrópusambandinu. Þetta helst í hendur við landsframleiðslu á mann sem var 34% meiri hér á landi í fyrra en að jafnaði í Evrópusambandinu. Hagstofan birti gögn um þetta í síðustu viku. Dýrast er að kaupa í matinn í Sviss en ódýrast í Tyrklandi.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Við þetta fór árshækkun vísitölunnar úr 6,4% í 8,4%. Hækkunin er sú fjórða í röð, en vísitalan hækkaði um 0,8% í mars og apríl og um 1,9% í febrúar. Verð á sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði mest á milli mánaða.
- Vísitala leiguverðs hækkaði um 3,2% á milli mánaða í maí. Vísitalan segir til um breytingu á leiguverði nýrra samninga, sem gerðir voru í apríl og maí. Hagstofan tekur nú upp nýja aðferð við mælingu á reiknaðri húsaleigu sem byggir á sömu gögnum en tekur aftur á móti tillit til allra viðeigandi leigusamninga sem í gildi eru hvern mánuð, ekki bara nýrra samninga.
- HMS birti mánaðarskýrslu.
- Kjaratölfræðinefnd birti vorskýrslu.
- Verðbólga í Bretlandi lækkaði úr 2,3% í 2,0%, Englandsbanki hélt vöxtum óbreyttum en svissneski seðlabankinn lækkaði vexti um 0,25 prósentustig.
- Lánasjóður sveitarfélaga og Íslandsbanki héldu skuldabréfaútboð.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
![Flugvél á flugvelli](https://images.prismic.io/landsbankinn/c68d10e5-e50c-4447-8778-bd06a35cab8f_Jet-Brussels-iStock-1161966623.jpg?fit=max&w=3840&rect=1119,770,2455,1841&q=50)
27. júní 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/2fffc01a-44b7-44ee-bdc1-b8bd2c29c1ea_5.jpg?fit=max&w=3840&rect=55,0,1708,1281&q=50)
25. júní 2024
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
![Bílar](https://images.prismic.io/landsbankinn/135415c5-fb94-4d8d-8130-b0c165cf7c82_LB_Brimborg_Festi_V4A9178_1920.jpg?fit=max&w=3840&rect=94,295,1305,979&q=50)
25. júní 2024
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
![Fjölbýlishús](https://images.prismic.io/landsbankinn/d1432608-ac46-49b6-b68a-6f93b661de51_Fjolbylishus-nylegt.jpg?fit=max&w=3840&rect=371,405,853,640&q=50)
19. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Nafnverð íbúða er 8,4% hærra en á sama tíma í fyrra og raunverð íbúða er 4% hærra. Undirritaðir kaupsamningar um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu voru 150% fleiri í maí á þessu ári en í maí í fyrra.
![Krani með stiga](https://images.prismic.io/landsbankinn/77bfc8fa-18ef-4436-87e4-b0ba22c46e1b_Krani-med-stiga.jpg?fit=max&w=3840&rect=157,0,2493,1870&q=50)
18. júní 2024
Í síðustu viku fengum við tölur um atvinnuleysi, fjölda ferðamanna og greiðslukortaveltu hér á landi í maí. Seðlabanki Bandaríkjanna hélt vöxtum óbreyttum. Síðar í dag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs.
![Strönd](https://images.prismic.io/landsbankinn/e7bb6ded-8c84-494c-9fab-7d306deb67ff_strandlengja.jpg?fit=max&w=3840&rect=1909,691,3185,2389&q=50)
14. júní 2024
Kortavelta íslenskra heimila jókst á milli ára í maí, bæði innanlands og erlendis. Síðustu mánuði hefur kortavelta nær alltaf dregist saman á milli ára en eykst nú meira en hún hefur gert frá því í janúar 2023. Þessi aukna kortavelta vekur athygli í þrálátu hávaxtastigi og samdrætti í hagkerfinu á fyrsta ársfjórðungi.
![Frosnir ávextir og grænmeti](https://images.prismic.io/landsbankinn/8452cf5e-0ca8-451f-aef8-e1ba9d5f6163_Frosnir-avextir.jpg?fit=max&w=3840&rect=292,0,4645,3484&q=50)
13. júní 2024
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,47% á milli mánaða í júní og að verðbólga lækki í 5,8%. Samkvæmt spánni verða hækkanirnar nokkuð almennar, líkt og í síðasta mánuði. Við spáum nokkuð óbreyttri verðbólgu næstu mánuði.
![Ferðafólk](https://images.prismic.io/landsbankinn/f53b6c0f-386f-4b66-ab49-15169d8feeb1_Ferdafolk-a-halendi.jpg?fit=max&w=3840&rect=1146,1088,1833,1375&q=50)
11. júní 2024
Á fyrstu fimm mánuðum ársins komu 3,9% fleiri erlendir ferðamenn til Íslands en á sama tíma í fyrra. Á móti hefur skráðum gistinóttum fækkað um hálft prósent á fyrstu fjórum mánuðum ársins frá sama tímabili í fyrra og að sama skapi hefur kortavelta erlendra ferðamanna á föstu gengi dregist saman um tæplega 2% á milli ára.
![Seðlabanki Íslands](https://images.prismic.io/landsbankinn/d633164a-2af2-4a30-90a9-4db379b86373_MBL0019286-Se%C3%B0labanki-1920.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,50,1920,1440&q=50)
10. júní 2024
Evrópski seðlabankinn lækkaði vexti í síðustu viku. Vinnumarkaðstölur frá Bandaríkjunum voru sterkari en almennt var búist við sem eykur líkurnar á að vaxtalækkunarferli seðlabankans þar í landi seinki.
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/dcdf9961-3990-46d9-b86e-8010418b2e70_Grafik-linurit-16-9.jpg?fit=max&w=3840&rect=228,0,3643,2732&q=50)
6. júní 2024
Meðfylgjandi er mánaðarlegt yfirlit sértryggðra skuldabréfa.