Veruleg aukning í kortaveltu annan mánuðinn í röð
Seðlabanki Íslands birti fyrir helgi gögn um veltu innlendra greiðslukorta í apríl. Alls nam velta tengd verslun og þjónustu innanlands 68 mö.kr. og jókst um 21% milli ára miðað við fast verðlag. Kortavelta Íslendinga erlendis nam alls 9 mö.kr. og jókst um 59% milli ára miðað við fast gengi. Samanlagt jókst kortavelta um 25% milli ára í apríl miðað við fast gengi og fast verðlag sem er svipuð breyting og mældist milli ára í mars þegar velta jókst um 20%.
Fjölmargir Íslendingar fengu a.m.k. fyrri skammt bóluefnis gegn veirunni í apríl og virðist það hafa haft nokkur áhrif á ferðavilja fólks. Kaup Íslendinga á ferðaþjónustu og skipulögðum ferðum jukust um 563% sé miðað við aprílmánuð í fyrra sem verður að teljast verulegur munur. Veltan mælist þó 76% minni en í aprílmánuði 2019 og því ekki hægt að fullyrða að kaup á ferðalögum sé komin á þann stað að geta talist eðlileg, enda enn þá miklar skorður á ferðafrelsi fólks milli landa.
Það má gera ráð fyrir því að á næstu mánuðum verði hlutfallslega hraðari vöxtur í neyslu á þjónustu en vörum. Aflétting sóttvarnar- og samkomutakmarkana, ásamt jákvæðri framvindu bólusetninga er til þess fallið að auka verulega áhuga og möguleika fólks á að neyta slíkrar þjónustu eftir langa bið.