Hag­sjá: Launa­breyt­ing­ar að fest­ast í rúm­lega 4% takti

Þrátt fyrir að hækkunartaktur launa hafi lækkað nokkuð stöðugt hefur kaupmáttur launa aukist mikið og var t.d. rúmlega 17% meiri nú í október en í árslok 2015. Kaupmáttur hefur aukist áfram á þessu ári og var 2,2% meiri í október en í desember í fyrra. Frá áramótum 2014/2015 hefur kaupmáttur launa aukist um rúm 26%, eða u.þ.b. 5,5% á ári.
28. nóvember 2019

Samantekt

Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hækkaði launavísitalan um 0,54% milli september og október. Síðustu 12 mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,2%, en frá því í júní hefur ársbreytingin verið föst í 4,2%-4,3%, og hefur ekki verið svona lítil síðan í ársbyrjun 2011.

Síðustu ár hefur launavísitalan fyrst og fremst hækkað mikið þá mánuði þegar áfangahækkanir vegna kjarasamninga koma til. Þannig hækkaði launavísitalan um 3,5% í febrúar 2016 og 3,2% í maí 2017. Þessar einstöku hækkanir hafa farið töluvert minnkandi á síðustu árum. Þannig varð hækkun launavísitölunnar vegna kjarasamninganna frá í vor töluvert minni en síðustu ár. Á árinu 2016 hækkaði launavísitalan að jafnaði um 0,7% á mánuði, um 0,6% 2017, 0,5% 2018 og um 0,4% það sem af er þessu ári. Þróunin hefur því verið nokkuð jöfn niður á við.

Viðræður vegna kjarasamninga flestra hópa á opinbera markaðnum hafa staðið yfir frá því í vor án þess að samningar hafi verið gerðir. Því hefur ekki verið um neinar launabreytingar að ræða þar á síðustu mánuðum sem dregur úr hækkun launavísitölunnar.

Þrátt fyrir að hækkunartaktur launa hafi lækkað nokkuð stöðugt hefur kaupmáttur launa aukist mikið og var t.d. rúmlega 17% meiri nú í október en í árslok 2015. Kaupmáttur hefur aukist áfram á þessu ári og var 2,2% meiri í október en í desember í fyrra. Frá áramótum 2014/2015 hefur kaupmáttur launa aukist um rúm 26%, eða u.þ.b. 5,5% á ári.

Í langtímasamhengi hefur kaupmáttur aldrei verið meiri og hefur hann aukist nær stöðugt frá árinu 2010. Fyrir hrun var kaupmáttur hæstur á miðju ári 2008, en hann er tæplega 26% hærri núna en þá.

Næstu samningsbundnu launabreytingar á almenna markaðnum verða ekki fyrr en í apríl á næsta ári og því má búast við að kaupmáttur láti eitthvað undan síga fram að því, nema launaskrið byrji að taka við sér. Þó eru þess ekki mikil merki, enda spenna á vinnumarkaði farið minnkandi eins og sést m.a. á auknu atvinnuleysi. Væntanlega er stefnt að því að nýir kjarasamningar verði gerðir á opinbera markaðnum fyrir áramót og munu áhrif þeirra lyfta launavísitölunni upp á við.

Tölur frá Hagstofunni um nánari samsetningu launavísitölunnar ná fram til ágúst 2019. Sé litið á launabreytingar stóru hópanna á vinnumarkaði á einu ári, frá ágúst 2018 til sama tíma í ár, má sjá að áhrif kjarasamninga skipta verulegu máli. Launahækkanir á almenna markaðnum á þessum tíma voru þannig verulega meiri en á þeim opinbera. Kjarasamningar á almenna markaðnum voru gerðir í byrjun apríl og vikunum þar á eftir, en í ágúst höfðu ekki verið gerðir neinir samningar á opinbera markaðnum.

Breyting launa eftir starfsstéttum á einu ári frá ágúst 2018 til sama mánaðar 2019 var mest hjá þjónustu-, sölu og afgreiðslufólki, 6,4%, og næstmest hjá verkafólki, 6,1%. Launavísitalan fyrir heildina hækkaði um 4,3% á þessum tíma og því virðist sem markmið kjarasamninganna um að hækka lægstu launin mest séu að ganga nokkuð vel eftir. Laun sérfræðinga og stjórnenda hækkuðu áberandi minnst á þessu tímabili, eða undir 4%, sem er lægra en hækkun launavísitölu.

Nú hefur kjarasamningum verið lokað fyrir nær allan almenna markaðinn, en blaðamenn hafa nýlega hafnað samningi sem gerður var. Langstærstur hluti opinbera markaðarins er enn með lausa samninga. Rammi lífskjarasamningsins frá 3. apríl hefur náð fótfestu á nær öllum almenna markaðnum og einnig þeim fáu samningum sem hafa verið gerðir á þeim opinbera. Blaðamenn og opinberir starfsmenn eiga hins vegar eftir að ná samningum.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Launabreytingar að festast í rúmlega 4% takti (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
Evrópsk verslunargata
22. júlí 2024
Vikubyrjun 22. júlí 2024
Í síðustu viku birtust gögn sem gáfu til kynna talsverðan kraft á íbúðamarkaði um þessar mundir. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% milli mánaða í júní og vísitala leiguverðs um 2,5%.
Hús í Reykjavík
18. júlí 2024
Spenna á íbúðamarkaði
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í júní. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs jókst úr 8,4% í 9,1% en svo mikil hefur árshækkunin ekki verið síðan í febrúar 2023. Leiguverð hækkaði einnig á milli mánaða í júní, alls um 2,5%. Mikil velta var á íbúðamarkaði í júní og ljóst að íbúðamarkaður hefur tekið verulega við sér.
Gönguleið
15. júlí 2024
Vikubyrjun 15. júlí 2024
Erlendir ferðamenn voru 9% færri í júní á þessu ári en í júní í fyrra. Atvinnuleysi var 3,1% í júní og er áfram lítillega meira en á sama tíma í fyrra.
Fataverslun
10. júlí 2024
Spáum að verðbólga aukist lítillega og verði 5,9% í júlí 
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október. 
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur