5. september 2022 - Greiningardeild
Vikan framundan
- Á miðvikudag gefur Seðlabanki Íslands út fundargerð peningastefnunefndar og tölur um raungengi. Hagstofan gefur út tölur um þjónustuviðskipti eftir flokkun og löndum.
- Á föstudag gefur Vinnumálastofnun út tölur um skráð atvinnuleysi og Lánamál ríkisins birta markaðsupplýsingar.
Mynd vikunnar
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,29% milli mánaða í ágúst og lækkaði ársverðbólgan úr 9,9% í 9,7%. Þetta er í fyrsta sinn síðan í júní 2021 sem ársverðbólgan lækkar milli mánaða. Við teljum að verðbólgan hafi náð hámarki í júlí og að við taki mjög hæg hjöðnun næstu mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði einnig milli mánaða, úr 7,5% í 7,1% á ársgrundvelli.
Efnahagsmál
- Ársverðbólgan lækkaði úr 9,9% í 9,7%. Þetta er í fyrsta sinn síðan júní 2021 sem ársverðbólgan lækkar milli mánaða.
- Hagvöxtur mældist 6,1% á öðrum fjórðungi og er þetta ögn minni vöxtur en á fyrsta fjórðungi, þegar hann mældist 7,6%.
- Seðlabankinn gaf út tölur um greiðslujöfnuð og erlenda stöðu þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi.
- Hlutabréfamarkaðir heimsins lækkuðu aftur nokkuð í ágúst eftir mikla hækkun í júlí og kom sú lækkun helst til í lok mánaðarins.
- Tvö útboð sértryggðra skuldabréfa voru haldin í ágúst af Landsbankanum og Íslandsbanka.
Fjármálamarkaðir
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á

13. mars 2025
Við spáum 0,25 prósentustiga vaxtalækkun í næstu viku. Verðbólga hjaðnaði um 0,4 prósentustig í febrúar en við teljum að hagvöxtur umfram væntingar og aukin neysla, lítil breyting á verðbólguvæntingum og ólga á vinnumarkaði haldi peningastefnunefnd á tánum.

13. mars 2025
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,54% á milli mánaða í mars og að verðbólga hjaðni úr 4,2% í 3,9%. Hjöðnun á milli mánaða skýrist ekki síst af töluvert minni hækkun á reiknaðri húsaleigu en fyrir ári síðan. Við gerum ekki ráð fyrir miklum breytingum á verðbólgu næstu mánuði og teljum að hún verði áfram rétt undir 4% í júní.

10. mars 2025
Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra og sömuleiðis á vöruviðskiptum í febrúar samkvæmt gögnum sem bárust í síðustu viku. Seðlabanki Evrópu lækkaði vexti í síðustu viku, eins og við var búist. Í vikunni fara fram verðmælingar fyrir marsmælingu vísitölu neysluverðs, Vinnumálastofnun birtir skráð atvinnuleysi og Ferðamálastofa birtir tölur um fjölda ferðamanna um Keflavíkurflugvöll.

7. mars 2025
Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra, en stór hluti hans var vegna færslna sem höfðu ekki í för með sér gjaldeyrisflæði og styrktist krónan því þrátt fyrir þetta og erlend staða þjóðarbúsins batnaði.

3. mars 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

3. mars 2025
Verðbólga lækkaði úr 4,6% í 4,2% í febrúar, en við teljum að heldur muni draga úr lækkunartakti verðbólgu næstu mánuði. Hagvöxtur mældist 2,3% á fjórða ársfjórðungi 2024 og 0,6% fyrir árið í heild. Umsvif í hagkerfinu voru umfram spár, en Hagstofan færði upp hagvöxt á fyrstu níu mánuðum ársins. Í vikunni fram undan eru nokkur uppgjör, Seðlabankinn birtir greiðslujöfnuð við útlönd og það er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Evrópu.

28. feb. 2025
Hagvöxtur var 0,6% árið 2024. Krafturinn í hagkerfinu var lítillega umfram flestar spár sem gerðu heldur ráð fyrir lítils háttar samdrætti. Hagvöxturinn var ekki síst drifinn áfram af aukinni fjárfestingu, bæði í atvinnuvegum og íbúðauppbyggingu.

27. feb. 2025
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,91% á milli mánaða í febrúar, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar því úr 4,6% í 4,2%. Við eigum enn von á að verðbólga hjaðni næstu mánuði, þó það hægi á lækkunartaktinum, og mælist 3,8% í maí.

24. feb. 2025
Í vikunni birtir Hagstofan febrúarmælingu vísitölu neysluverðs og þjóðhagsreikninga fyrir lokafjórðung síðasta árs. Í síðustu viku uppfærði Hafrannsóknarstofnun ráðleggingar um loðnuafla en samkvæmt því munu íslensk skip fá um 4,6 þúsund tonn. Í síðustu viku bárust einnig gögn um greiðslukortaveltu landsmanna í janúar sem var 6,5% meiri að raunvirði en árið áður. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,5% á milli mánaða í janúar, en svo mikið hefur hún ekki hækkað síðan í febrúar 2024.

21. feb. 2025
Íbúðaverð hækkaði mun meira í janúar en síðustu mánuði. Íbúðaverð hefur verið nokkuð sveiflukennt og óútreiknanlegt undanfarið en stökkið í janúar skýrist af verðhækkun á sérbýli. Íbúðum á sölu hefur fjölgað hratt síðustu mánuði og birgðatími lengst. Grindavíkuráhrifin hafa fjarað út að langmestu leyti og hækkanir á verðtryggðum vöxtum kældu markaðinn undir lok síðasta árs.