Spá­um áfram­hald­andi hjöðn­un verð­bólg­unn­ar í októ­ber

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,3% milli mánaða í október. Gangi spáin eftir lækkar ársverðbólgan úr 9,3% í 9,0%. Ef spáin rætist yrði þarna um að ræða þriðja mánuðinn í röð sem verðbólga hjaðnar. Við teljum að hámarki verðbólgunnar sé þegar náð og að hún muni halda áfram að hjaðna næstu mánuði.
Flugvél
13. október 2022 - Greiningardeild

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09% milli mánaða í september, sem var ögn minni hækkun milli mánaða en við áttum von á. Við höfðum spáð 0,14% hækkun þannig að það munaði frekar litlu og má því segja að mælingin hafi verið í takt við væntingar. Þrátt fyrir það var ýmislegt sem kom okkur á óvart í septembermælingunni. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun meira en við áttum von á, matarkarfan hækkaði minna og reiknuð húsaleiga var nokkuð óbreytt, en við áttum von á lækkun milli mánaða.

Flugfargjöld til útlanda, matarkarfan og dælueldsneyti hækka milli mánaða

Við spáum því að vísitalan hækki um 0,3% milli mánaða í október. Gangi það eftir lækkar verðbólgan um 0,3 prósentustig, eða úr 9,3% í 9,0%. Mun þá verðbólgan vera 0,9 prósentustigum lægri en þegar hún mældist hæst í þessum verðbólgukúf, 9,9% í júlí. Spá okkar gerir ráð fyrir að flugfargjöld til útlanda hækki um 4,3% milli mánaða og að áhrif þess verði 0,07% til hækkunar, matarkarfan hækki um 0,4% sem mun hafa 0,06% áhrif til hækkunar og dæluverð á eldsneyti hækki um 1,3% sem hefur 0,05% áhrif. Þessir þrír undirliðir skýra 60% af hækkun vísitölunnar milli mánaða. Það er lítið um að undirliðir lækki að þessu sinni, einungis póstur og sími sem við spáum að lækki milli mánaða, en áhrif þess á vísitöluna í heild eru óveruleg.

Spá um októbermælingu VNV

Spá
Undirliður Vægi í VNV Breyting Áhrif
Matur og drykkjarvara 15,0% 0,4% 0,06%
Áfengi og tóbak 2,4% 0,1% 0,00%
Föt og skór 3,5% 0,5% 0,02%
Húsnæði án reiknaðra húsaleigu 10,3% 0,1% 0,01%
- Reiknuð húsaleiga 19,9% 0,1% 0,02%
Húsgögn og heimilisbúnaður 6,4% 0,0% 0,00%
Heilsa 3,7% 0,4% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 4,0% 0,2% 0,01%
- Kaup ökutækja 5,9% 0,2% 0,01%
- Bensín og díselolía 3,8% 1,3% 0,05%
- Flugfargjöld til útlanda 1,7% 4,3% 0,07%
Póstur og sími 1,6% -0,6% -0,01%
Tómstundir og menning 9,3% 0,4% 0,04%
Menntun 0,7% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,0% 0,0% 0,00%
Aðrar vörur og þjónusta 7,0% 0,4% 0,03%
Alls 100,0% 0,33%

Fasteignamarkaðurinn loks að róast

Mikil hækkun á húsnæðisverði hefur verið megindrifkraftur verðbólgunnar undanfarið. Þannig skýrði reiknuð húsaleiga, sem endurspeglar kostnað þess að búa í eigin húsnæði, um 40% af ársverðbólgunar í september, eða 3,8 prósentustig af 9,3% verðbólgu. Nú sjáum við aftur á móti mjög skýr merki þess að markaðurinn sé að róast. Mæling Hagstofunnar á markaðsverði íbúðarhúsnæðis, sem var notuð við útreikning á reiknaðri húsaleigu í september, var óbreytt milli mánaða. Nýjasta mæling Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) á vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýndi lækkun milli mánaða og í mánaðarskýrslu stofnunarinnar sem kom út um miðjan september kom fram að hlutfall íbúða sem selst yfir ásettu verði hefði lækkað, íbúðum í sölu fjölgað og kaupsamningum fækkað. Allt bendir þetta til þess að markaðurinn sé að róast.

Í september var áhrif vaxtabreytinga á reiknaða húsaleigu til hækkunar í fyrsta sinn síðan í janúar 2019, en framlag vaxtabreytinga fór lægst í 0,5 prósentustig til lækkunar sumarið 2020. Við eigum von á mjög hófstilltum hækkunum á húsnæðisverði næstu mánuði. Þó munu áhrif vaxtabreytinga til hækkunar á reiknaðri húsaleigu aukast. Spá okkar til næstu mánaða gerir ráð fyrir í mesta lagi 0,2% hækkunum milli mánaða og að áhrifin á vísitöluna verði ekki meiri en 0,03 prósentustig. Til samanburðar hækkaði reiknuð húsaleiga að meðaltali um 2,1% milli mánaða fyrstu sjö mánuði ársins, þannig að þetta verður veruleg breyting gangi spá okkar eftir.

Dýrara að keyra, fljúga og taka strætó

Ferðir og flutningar eru um 15% af vísitölu neysluverðs. Alls gerum við ráð fyrir að þessi liður hækki um 0,9% milli mánaða og að áhrifin á vísitölu neysluverðs verði 0,14% til hækkunar.

Spá okkar gerir ráð fyrir að flugfargjöld til útlanda hækki um 4,3% milli mánaða. Gangi það eftir verður tæplega 20% dýrara að fljúga til útlanda en í október 2019, en frá því í júní hafa flugfargjöld verið á bilinu 15% til 30% dýrari en í sama mánuði 2019. Þess ber auðvitað að geta að flugfargjöld til útlanda eiga það til að sveiflast mjög milli mánaða og er sá undirliður vísitölu neysluverðs sem  greinendur eiga einna erfiðast með að spá fyrir um.

Heimsmarkaðsverð á hráolíu (Brent) er núna um 95 USD/fatið, en var að meðaltali um 91 USD/fatið í verðkönnunarvikunni í september. Alls er heimsmarkaðsverð því 4,3% hærra í Bandaríkjadölum, en vegna þess að Bandaríkjadalur hefur styrkst er fatið núna um 8,5% hærra í krónum talið. Verðkönnun okkar bendir til þess að bensín hafi hækkað um 1,5% milli mánaða en díselolía hafi staðið í stað. Alls mun liðurinn bensín og díselolía því hækka um 1,3% milli mánaða. Gangi það eftir mun árshækkun dælueldsneytis mælast 26%.

Að lokum hækkaði gjaldskrá Strætó um 12,5% þann 1. október. Strætisvagnar eru 0,07% af vísitölu neysluverðs og eru áhrif þeirrar hækkunar á VNV um 0,01 prósentustig.

Matarkarfan hækkar

Eins og fram hefur komið hækkaði matarkarfan mun minna milli mánaða í september en við áttum von á. Verðlagsnefnd búvara hækkaði lágmarksverð mjólkur til bænda og heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða hækkaði því milli ágúst- og septembermælingar vísitölu neysluverðs. Áhrifin voru svipuð og við áttum von á. Það sem kom samt á óvart var að heildaráhrif hinna liðanna í matarkörfunni voru engin og mjólk og mjólkurafurðir skýrðu því alla hækkunina á matarkörfunni milli mánaða í september. Við eigum von á að matarkarfan hækki um 0,4% milli mánaða núna í október. Gangi það eftir verður matarkarfan um 8,4% dýrari en í október 2021.

Eigum von á 8,4% verðbólgu í lok árs

Spá okkar um 9,0% verðbólgu í október er 0,1 prósentustigum hærri en síðasta birta spá okkar fyrir októbermánuð. Hún birtist 28. september, daginn sem Hagstofan birti septembermælingu vísitölu neysluverðs. Skýrist munurinn af því að samkvæmt verðmælingu okkar hefur verð á bensíni hækkað, en við gerðum ráð fyrir óverulegri breytingu milli mánaða. Krónan er einnig örlítið veikari en þá. Við gerum óverulega breytingu á spá okkar fyrir aðra undirliði. Skoðun okkur á framvindu næstu mánuði er einnig óbreytt. Við eigum ennþá von á hægfara hjöðnun verðbólgu út árið. Ársverðbólgan mun líklega lækka nokkuð í janúar á næsta ári vegna grunnáhrifa, en þá dettur mæling milli desember 2021 og janúar 2022 út úr ársverðbólgunni og en sú mæling var nokkuð há miðað við dæmigerðan janúarmánuð.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Hagfræðideildar Landsbankans hf. (hagfraedideild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara. Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti. Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Hagfræðideild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Hús í Reykjavík
31. mars 2025
Vikubyrjun 31. mars 2025
Verðbólga lækkaði úr 4,2% í 3,8% í mars. Lækkun á verðbólgu skýrist að langstærstum hluta af því að reiknuð húsaleiga hækkaði minna en í sama mánuði í fyrra. Undirliggjandi verðbólga hjaðnaði líka sem sést á því að VNV án húsnæðis og allar kjarnavísitölur lækkuðu á milli mánaða. Fjármálastöðugleikanefnd telur fjármálakerfið standa traustum fótum en segir mikla óvissu í alþjóðamálum geta reynt á viðnámsþrótt þjóðarbúsins.
27. mars 2025
Verðbólga mælist undir 4%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,37% á milli mánaða í mars, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar úr 4,2% í 3,8% og er komin undir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands, í fyrsta skipti frá því í lok árs 2020. Verðmælingin var nokkuð góð en við teljum að á næstunni hægi á hjöðnuninni.
Fasteignir
24. mars 2025
Vikubyrjun 24. mars 2025
Peningastefnunefnd lækkaði vexti um 0,25 prósentustig á miðvikudaginn í síðustu viku. Ákvörðunin var í takt við væntingar. Vísitala íbúðaverðs hélst nokkurn veginn óbreytt á milli mánaða í febrúar. Til samanburðar hækkaði verðið mun meira í febrúar í fyrra, um tæp 2%. Kortavelta landsmanna innanlands hélt áfram að aukast á milli ára í febrúar en jókst þó aðeins minna en undanfarna mánuði.
Ferðamenn
17. mars 2025
Vikubyrjun 17. mars 2025
Við búumst við að peningastefnunefnd lækki vexti um 0,25 prósentustig á miðvikudaginn. Í síðustu viku fóru fram verðmælingar vegna marsmælingar vísitölu neysluverðs og við spáum því að verðbólga lækki úr 4,2% í 3,9%. Atvinnuleysi var 4,3% í febrúar og hækkaði um 0,4 prósentustig á milli ára. 147 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í febrúar, 5,6% færri en í sama mánuði í fyrra.
Seðlabanki
13. mars 2025
Spáum vaxtalækkun um 0,25 prósentustig
Við spáum 0,25 prósentustiga vaxtalækkun í næstu viku. Verðbólga hjaðnaði um 0,4 prósentustig í febrúar en við teljum að hagvöxtur umfram væntingar og aukin neysla, lítil breyting á verðbólguvæntingum og ólga á vinnumarkaði haldi peningastefnunefnd á tánum.
13. mars 2025
Spáum verðbólgu undir 4% í mars
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,54% á milli mánaða í mars og að verðbólga hjaðni úr 4,2% í 3,9%. Hjöðnun á milli mánaða skýrist ekki síst af töluvert minni hækkun á reiknaðri húsaleigu en fyrir ári síðan. Við gerum ekki ráð fyrir miklum breytingum á verðbólgu næstu mánuði og teljum að hún verði áfram rétt undir 4% í júní.
Flutningaskip
10. mars 2025
Vikubyrjun 10. mars 2025
Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra og sömuleiðis á vöruviðskiptum í febrúar samkvæmt gögnum sem bárust í síðustu viku. Seðlabanki Evrópu lækkaði vexti í síðustu viku, eins og við var búist. Í vikunni fara fram verðmælingar fyrir marsmælingu vísitölu neysluverðs, Vinnumálastofnun birtir skráð atvinnuleysi og Ferðamálastofa birtir tölur um fjölda ferðamanna um Keflavíkurflugvöll.
Sendibifreið og gámar
7. mars 2025
Verri niðurstaða í viðskiptum við útlönd
Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra, en stór hluti hans var vegna færslna sem höfðu ekki í för með sér gjaldeyrisflæði og styrktist krónan því þrátt fyrir þetta og erlend staða þjóðarbúsins batnaði.
3. mars 2025
Fréttabréf Greiningardeildar 3. mars 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Peningaseðlar
3. mars 2025
Vikubyrjun 3. mars 2025
Verðbólga lækkaði úr 4,6% í 4,2% í febrúar, en við teljum að heldur muni draga úr lækkunartakti verðbólgu næstu mánuði. Hagvöxtur mældist 2,3% á fjórða ársfjórðungi 2024 og 0,6% fyrir árið í heild. Umsvif í hagkerfinu voru umfram spár, en Hagstofan færði upp hagvöxt á fyrstu níu mánuðum ársins. Í vikunni fram undan eru nokkur uppgjör, Seðlabankinn birtir greiðslujöfnuð við útlönd og það er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Evrópu.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur