Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 4. maí 2022 kl. 17:00 í Landsbankanum Austurstræti 11.
Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt til setu á ársfundinum. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum sjóðsins:
- Skýrsla stjórnar
- Kynning á ársreikningi
- Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins
- Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun
- Kosning í stjórn
- Kosning endurskoðanda
- Tillögur um breytingar á samþykktum
- Laun stjórnarmanna
- Önnur mál
Tillögur um breytingar á samþykktum þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti viku fyrir ársfund. Framboðum aðalmanna til stjórnar skal skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Að þessu sinni verða kosnir tveir aðalmenn til þriggja ára. Tillögur og framboð skulu berast til stjórnar Íslenska lífeyrissjóðsins, Austurstræti 11, 101 Reykjavík. Tillögur að breytingum á samþykktum og framboð til stjórnar verða birt á vefsvæði sjóðsins, islenskilif.is.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu sjóðsins eða hjá verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Landsbankans í síma 410 4040.