Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 21. maí 2024 kl. 16.00 í Landsbankanum Reykjastræti 6.
Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt til setu á ársfundinum. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum sjóðsins:
- Skýrsla stjórnar
- Kynning á ársreikningi
- Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins
- Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun
- Kosning í stjórn
- Kosning endurskoðanda
- Tillögur um breytingar á samþykktum
- Laun stjórnarmanna
- Önnur mál
Tillögur um breytingar á samþykktum þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögur til ályktana sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti viku fyrir ársfund. Framboðum aðalmanna til stjórnar skal skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Að þessu sinni verða kosnir tveir aðalmenn, einn til þriggja ára og einn til tveggja ára. Vegna núverandi kynjasamsetningar stjórnar og reglna um kynjahlutföll verða aðeins konur í kjöri að þessu sinni. Tillögur og framboð aðalmanna skulu berast til stjórnar Íslenska lífeyrissjóðsins, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík. Tillögur að breytingum á samþykktum og framboð aðalmanna til stjórnar verða birt á vefsvæði sjóðsins, islenskilif.is, viku fyrir fundinn.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á vef sjóðsins eða hjá Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans í síma 410 4040.