Opnu söluferli á hlut í Kea-hótelum lokið án sölu
Opnu söluferli á 35% eignarhlut Hamla ehf. sem er dótturfélags Landsbankans, í hótelkeðjunni Keahótelum ehf. er lokið, án þess að samningar hafi náðst um sölu.
Landsbankinn eignaðist 35% hlut í hótelkeðjunni í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins árið 2020. Söluferlið hófst í nóvember 2023 og í kjölfarið hófust viðræður við hæstbjóðendur. Samningar um sölu náðust ekki og því hefur söluferlinu verið lokið án árangurs.
Þrátt fyrir að opnu söluferli sé nú lokið er hlutur bankans áfram til sölu. Áhugasamir geta haft samband við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, fyrirtaekjaradgjof@landsbankinn.is.
Nánari upplýsingar um eignir bankans sem eru til sölu eru á vef bankans.