Landsbankinn breytir vöxtum

Landsbankinn breytir vöxtum inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi 13. febrúar 2025. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Útlánsvextir
- Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum lækka um 0,50 prósentustig.
- Kjörvextir á óverðtryggðum lánum lækka um 0,50 prósentustig.
- Yfirdráttarvextir lækka um 0,50 prósentustig.
- Fastir vextir til þriggja ára á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum lækka um 0,10 prósentustig.
- Fastir vextir til fimm ára á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum lækka um 0,20 prósentustig.
Innlánsvextir
- Breytilegir vextir á óverðtryggðum veltureikningum lækka um 0,50 prósentustig.
- Breytilegir vextir á óverðtryggðum sparireikningum lækka um 0,50 prósentustig.
- Vextir á reikningum í erlendri mynt taka breytingum að mestu leyti í samræmi við breytingar á stýrivöxtum og markaðsvöxtum í viðkomandi mynt.
Breytingarnar eru gerðar í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 5. febrúar sl. en þá lækkaði Seðlabankinn meginvexti um 0,50 prósentustig. Vaxtabreytingarnar taka einnig mið af vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum Landsbankans.
Breytingar á vöxtum útlána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.
Breytingar á vöxtum greiðslureikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu taka gildi að tveimur mánuðum liðnum í samræmi við skilmála sem gilda um þá reikninga.









