Landsbankinn breytir vöxtum
Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig og verða 7,25%. Breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig. Fastir vextir nýrra óverðtryggðra íbúðalána eru óbreyttir en fastir vextir verðtryggðra íbúðalána hækka um 0,30 prósentustig.
Kjörvextir á óverðtryggðum og verðtryggðum útlánum hækka um 0,25 prósentustig og yfirdráttarvextir hækka um 0,25 prósentustig.
Vextir á óverðtryggðum sparireikningum hækka að jafnaði um 0,25 prósentustig og vextir almennra veltureikninga hækka um 0,05 prósentustig.
Ofangreind vaxtaákvörðun er tekin í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 5. október sl. en þá hækkaði Seðlabankinn vexti um 0,25 prósentustig. Vaxtabreytingarnar taka einnig mið af vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum Landsbankans.
Ný vaxtatafla tekur gildi miðvikudaginn 12. október 2022. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.
Við vekjum athygli á fræðslugrein á vef bankans þar sem fjallað er um áhrif vaxtahækkana á lán. Ef lán (neytendalán eða fasteignalán til neytenda) er með breytilega vexti taka breytingarnar gildi 30 dögum eftir að tilkynnt er um breytinguna. Vextir lána með fasta vexti breytast ekki á meðan á fastvaxtatímanum stendur.









