Spá­um 9,6% verð­bólgu í maí

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,54% milli mánaða í maí og að ársverðbólgan lækki úr 9,9% í 9,6%. Verðbólgan hefur reynst þrálát síðustu mánuði og meiri en spár gerðu ráð fyrir. Við gerum ráð fyrir því að toppnum sé náð, verðbólga fari hægt hjaðnandi og mælist 8,4% í ágúst. Hagstofan birtir maímælingu vísitölu neysluverðs föstudaginn 26. maí næstkomandi.
Bananar
17. maí 2023

Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,31% milli mánaða í apríl og ársverðbólgan fór úr 9,8% í 9,9%. Hækkunin milli mánaða var meiri en við bjuggumst við; við spáðum 1% hækkun milli mánaða og 9,5% ársverðbólgu. Það sem helst kom á óvart var hækkun íbúðaverðs á landsbyggðinni sem olli því að reiknaða húsaleigan hækkaði töluvert meira en við höfðum gert ráð fyrir auk þess sem verð á nýjum bílum lækkaði minna en við höfðum spáð.

Spáum 0,54% hækkun milli mánaða

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,54% milli mánaða í maí. Matarkarfan, reiknuð húsaleiga og liðurinn hótel og veitingarstaðir munu samkvæmt okkar spá hafa mest áhrif til hækkunar en á móti vegur að bensín og flugfargjöld til útlanda munu vega til lækkunar. Þetta er meiri hækkun en við spáðum í lok apríl, þegar við birtum síðast skammtímaspá, og skýrist munurinn aðallega af vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sem birtist í gær og sýndi 0,8% hækkun milli mánaða, meiri hækkun en við gerðum ráð fyrir.

Gangi spáin eftir lækkar ársverðbólgan úr 9,9% í 9,6%. Verðbólgan jókst meira milli mánaða í maí í fyrra en við spáum að hún geri nú og það skýrir spána um að ársverðbólgan hjaðni.  Hækkunin í maí í fyrra var aðallega vegna mikillar hækkunar á húsnæðisverði auk þess sem heimsmarkaðsverð á bensíni hafði verið að hækka, ólíkt því sem nú er.

Verð á mat- og drykkjarvörum hækkar áfram

Samkvæmt verðathugun okkar á matvöru í maí hefur verð á flestum liðum matarkörfunnar hækkað lítillega milli mánaða og munar þar mestu um hækkun á kjöti, fiski og sælgæti. Við spáum því 1% hækkun á matarkörfunni og að áhrif á heildarvísitöluna verði 0,15 prósentustig til hækkunar. Gangi spá okkar eftir kemur þetta í kjölfar 1,5% hækkunar í síðasta mánuði.

Bensín og flugfargjöld lækka í maí

Verðkönnun okkar bendir til þess að verð á bensíni og díselolíu lækki um 1,9% milli mánaða í maí. Ef spáin gengur eftir verður maí fjórði mánuðurinn í röð þar sem bensínverð lækkar milli mánaða. Þessa lækkun má bæði rekja til lækkunar á heimsmarkaðsverð á olíu og styrkingu krónunnar á mót Bandaríkjadal.

Það sem af er ári hafa flugmiðar til útlanda verið rúmlega 20% dýrari en á sama tíma í fyrra, enda eftirspurn eftir flugi nokkuð meiri, sem sést m.a. á góðri sætanýtingu flugfélaganna. Við gerum ráð fyrir því að sú þróun haldi áfram og að flugfargjöld til útlanda verið hærri í sumar en í fyrra. Þau hækkuðu um 20% milli mánaða í apríl, eins og við var að búast vegna páskanna, og gerum við nú ráð fyrir því að sú hækkun gangi að einhverju leyti til baka og flugfargjöld lækki um 7,5% milli mánaða í maí. Við gerum svo ráð fyrir því að þau hækki aftur í júní og júlí þegar eftirspurnin er mest og lækki síðan aftur í ágúst.

Alls gerum við ráð fyrir að liðurinn ferðir og flutningar verði 0,18 prósentustig til lækkunar á vísitölu neysluverðs í maí. Þó er gott að hafa í huga að þessir liðir, og þá sérstaklega flugfargjöld til útlanda, sveiflast mjög mikið milli mánaða.

Enn talsvert líf í fasteignamarkaðnum

Samkvæmt tölum sem HMS birti í gær hækkaði vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu um 0,8% á milli mánaða í apríl, sem var nokkuð meiri hækkun en við bjuggumst við. Í síðasta mánuði hækkaði markaðsverð húsnæðis á landinu öllu nokkuð meira en vísitala íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu þar sem fasteignaverð utan höfuðborgarsvæðisins hækkaði mun meira en á höfuðborgarsvæðinu. Við gerum nú ráð fyrir að hækkun utan höfuðborgarsvæðisins verði svipuð og á höfuðborgarsvæðinu og að markaðsverð húsnæðis á landinu öllu hækki um 0,80% milli mánaða.

Spá okkar gerir síðan ráð fyrir að framlag vaxtabreytinga verði 0,86 prósentustig til hækkunar. Framlag vaxtabreytinga hefur hækkað nokkuð jafnt síðan í apríl og maí í fyrra þegar það var 0,31 prósentustig til lækkunar. Alls eigum við von á að liðurinn reiknuð húsaleiga, sem endurspeglar kostnað húsnæðiseigenda, hækki um 1,7% milli mánaða í maí og framlag þess til hækkunar á vísitölunni verði 0,31%.

Spá um maímælingu VNV

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 14,8% 1,0% 0,15%
Áfengi og tóbak 2,4% 0,1% 0,00%
Föt og skór 4,0% 0,5% 0,02%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,6% 0,4% 0,03%
- Reiknuð húsaleiga 18,8% 1,7% 0,31%
Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. 6,4% 0,6% 0,04%
Heilsa 3,7% 0,2% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 3,7% 0,6% 0,02%
- Kaup ökutækja 6,3% 0,3% 0,02%
- Bensín og díselolía 3,0% -1,9% -0,06%
- Flugfargjöld til útlanda 2,2% -7,5% -0,16%
Póstur og sími 1,7% 1,1% 0,02%
Tómstundir og menning 9,9% 0,4% 0,04%
Menntun 1,0% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,2% 1,2% 0,06%
Aðrar vörur og þjónusta 7,2% 0,4% 0,03%
Alls 100,0%   0,53%

Eigum von á að verðbólga verði um 8,4% í ágúst

Spá okkar til næstu mánaða gerir ráð fyrir að vísitalan hækki um 0,86% milli mánaða í júní, 0,47% í júlí og 0,38% í ágúst. Gangi spáin eftir mun verðbólga hjaðna niður í 9,0% í júní og í 8,3% í júlí en aukast svo lítillega aftur í ágúst og mælast 8,4%. Júní og júlí í fyrra voru mjög miklir hækkunarmánuðir og því spáum við því að ársverbólgan lækki í júní og júlí þrátt fyrir að vísitalan hækki. Vísitalan hækkaði mun minna á milli mánaða í ágúst í fyrra, og því spáum við því að ársverðbólgan aukist lítillega milli júlí og ágúst í ár.

Spá okkar til næstu mánaða er aðeins hærri en spáin sem við birtum í lok apríl. Mestu munar um að við gerum núna ráð fyrir hærra íbúðaverði, hærra verði á flugfargjöldum til útlanda og hærra verði á nýjum bílum. Á móti kemur að við búumst núna við að bensín og matvörur verði ódýrari en við gerðum ráð fyrir í lok apríl.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Hagfræðideildar Landsbankans hf. (hagfraedideild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Hagfræðideild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
27. mars 2025
Verðbólga mælist undir 4%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,37% á milli mánaða í mars, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar úr 4,2% í 3,8% og er komin undir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands, í fyrsta skipti frá því í lok árs 2020. Verðmælingin var nokkuð góð en við teljum að á næstunni hægi á hjöðnuninni.
Fasteignir
24. mars 2025
Vikubyrjun 24. mars 2025
Peningastefnunefnd lækkaði vexti um 0,25 prósentustig á miðvikudaginn í síðustu viku. Ákvörðunin var í takt við væntingar. Vísitala íbúðaverðs hélst nokkurn veginn óbreytt á milli mánaða í febrúar. Til samanburðar hækkaði verðið mun meira í febrúar í fyrra, um tæp 2%. Kortavelta landsmanna innanlands hélt áfram að aukast á milli ára í febrúar en jókst þó aðeins minna en undanfarna mánuði.
Ferðamenn
17. mars 2025
Vikubyrjun 17. mars 2025
Við búumst við að peningastefnunefnd lækki vexti um 0,25 prósentustig á miðvikudaginn. Í síðustu viku fóru fram verðmælingar vegna marsmælingar vísitölu neysluverðs og við spáum því að verðbólga lækki úr 4,2% í 3,9%. Atvinnuleysi var 4,3% í febrúar og hækkaði um 0,4 prósentustig á milli ára. 147 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í febrúar, 5,6% færri en í sama mánuði í fyrra.
Seðlabanki
13. mars 2025
Spáum vaxtalækkun um 0,25 prósentustig
Við spáum 0,25 prósentustiga vaxtalækkun í næstu viku. Verðbólga hjaðnaði um 0,4 prósentustig í febrúar en við teljum að hagvöxtur umfram væntingar og aukin neysla, lítil breyting á verðbólguvæntingum og ólga á vinnumarkaði haldi peningastefnunefnd á tánum.
13. mars 2025
Spáum verðbólgu undir 4% í mars
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,54% á milli mánaða í mars og að verðbólga hjaðni úr 4,2% í 3,9%. Hjöðnun á milli mánaða skýrist ekki síst af töluvert minni hækkun á reiknaðri húsaleigu en fyrir ári síðan. Við gerum ekki ráð fyrir miklum breytingum á verðbólgu næstu mánuði og teljum að hún verði áfram rétt undir 4% í júní.
Flutningaskip
10. mars 2025
Vikubyrjun 10. mars 2025
Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra og sömuleiðis á vöruviðskiptum í febrúar samkvæmt gögnum sem bárust í síðustu viku. Seðlabanki Evrópu lækkaði vexti í síðustu viku, eins og við var búist. Í vikunni fara fram verðmælingar fyrir marsmælingu vísitölu neysluverðs, Vinnumálastofnun birtir skráð atvinnuleysi og Ferðamálastofa birtir tölur um fjölda ferðamanna um Keflavíkurflugvöll.
Sendibifreið og gámar
7. mars 2025
Verri niðurstaða í viðskiptum við útlönd
Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra, en stór hluti hans var vegna færslna sem höfðu ekki í för með sér gjaldeyrisflæði og styrktist krónan því þrátt fyrir þetta og erlend staða þjóðarbúsins batnaði.
3. mars 2025
Fréttabréf Greiningardeildar 3. mars 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Peningaseðlar
3. mars 2025
Vikubyrjun 3. mars 2025
Verðbólga lækkaði úr 4,6% í 4,2% í febrúar, en við teljum að heldur muni draga úr lækkunartakti verðbólgu næstu mánuði. Hagvöxtur mældist 2,3% á fjórða ársfjórðungi 2024 og 0,6% fyrir árið í heild. Umsvif í hagkerfinu voru umfram spár, en Hagstofan færði upp hagvöxt á fyrstu níu mánuðum ársins. Í vikunni fram undan eru nokkur uppgjör, Seðlabankinn birtir greiðslujöfnuð við útlönd og það er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Evrópu.
28. feb. 2025
Hagvöxtur var 0,6% í fyrra
Hagvöxtur var 0,6% árið 2024. Krafturinn í hagkerfinu var lítillega umfram flestar spár sem gerðu heldur ráð fyrir lítils háttar samdrætti. Hagvöxturinn var ekki síst drifinn áfram af aukinni fjárfestingu, bæði í atvinnuvegum og íbúðauppbyggingu.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur