Afgreiðsla danskra peningaseðla
Viðskiptavinir geta nálgast danska peningaseðla í útibúum og hraðbönkum Landsbankans um allt land. Við viljum benda viðskiptavinum á að við höfum nú hætt móttöku á 1.000 kr. og 500 kr. dönskum peningaseðlum, sem og móttöku á öllum færeyskum peningaseðlum.
Engar breytingar eru á viðskiptum með 200 kr., 100 kr. og 50 kr. danska peningaseðla.
Viðskipti með reiðufé fylgja kröfum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Með hertum reglum í Danmörku hefur móttaka reiðufjár frá erlendum bönkum verið takmörkuð og því getur bankinn ekki lengur átt viðskipti með 500 kr. og 1000 kr. danska peningaseðla.