Landsbankinn breytir vöxtum
Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,75 prósentustig og verða 7,00%. Breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,20 prósentustig. Fastir vextir nýrra óverðtryggðra og verðtryggðra íbúðalána eru óbreyttir.
Kjörvextir á óverðtryggðum útlánum hækka um 0,75 prósentustig og kjörvextir á verðtryggðum útlánum hækka um 0,20 prósentustig. Yfirdráttarvextir hækka um 0,75 prósentustig.
Vextir á óverðtryggðum sparireikningum hækka um allt að 0,75 prósentustig og vextir almennra veltureikninga hækka um 0,15 prósentustig.
Ofangreind vaxtaákvörðun er tekin í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 24. ágúst sl. en þá hækkaði Seðlabankinn vexti um 0,75 prósentustig. Vaxtabreytingarnar taka einnig mið af vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum Landsbankans.
Ný vaxtatafla tekur gildi fimmtudaginn 1. september 2022. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.