Landsbankinn breytir vöxtum
Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,50 prósentustig og verða 4,70%. Engar breytingar eru á föstum vöxtum óverðtryggðra íbúðalána. Þá eru engar breytingar á vöxtum á verðtryggðum íbúðalánum, hvorki breytilegum né föstum.
Kjörvextir á óverðtryggðum útlánum hækka um 0,50 prósentustig. Engar breytingar eru á kjörvöxtum á verðtryggðum útlánum. Breytilegir vextir óverðtryggðra lána vegna bíla- og tækjafjármögnunar hækka um 0,50 prósentustig. Yfirdráttarvextir hækka um 0,75 prósentustig.
Vextir á óverðtryggðum sparireikningum hækka um allt að 0,75 prósentustig, vextir á reikningum með föstum vöxtum hækka um allt að 0,60 prósentustig og vextir almennra veltureikninga hækka um 0,10 prósentustig.
Ofangreind vaxtaákvörðun Landsbankans er tekin í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 9. febrúar sl. en þá hækkaði Seðlabankinn vexti um 0,75 prósentustig. Vaxtabreytingarnar taka einnig mið af vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum Landsbankans.
Ný vaxtatafla bankans tekur gildi fimmtudaginn 17. febrúar 2022. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.