Sjálfbær fjármálaþjónusta

Sjálfbær fjármálaþjónusta

Við bjóðum upp á sjálfbærar ávöxtunarleiðir og útlán fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Hér að neðan er yfirlit yfir möguleika á sjálfbærri fjármálaþjónustu sem bankinn býður upp á

Hjón úti í náttúru

Sjálfbær sparnaður

Með sjálfbærum sparnaði getum við ávaxtað peningana okkar á sama tíma og við stuðlum að sjálfbærri þróun. Þegar viðskiptavinir leggja peninga inn á sjálfbæran sparireikning eyrnamerkjum við þá upphæð til sjálfbærra útlána, sem þýðir að þeir fara í að fjármagna sjálfbær verkefni og fjárfestingar. Bílalán fyrir rafmagnsbílum eru dæmi um sjálfbær útlán.

Iðnaðarmenn að störfum

Eignadreifing sjálfbær

Eignadreifing sjálfbær hefur að markmiði að ná fram ávöxtun og dreifingu áhættu með sjálfbærni að leiðarljósi. Sjóðurinn fjárfestir eingöngu í fjármálagerningum, svo sem hlutabréfum, skuldabréfum og hlutdeildarskírteinum útgefanda sem skara fram úr á sviði sjálfbærni.

Fjölskylda

Græn bílalán

Landsbankinn vill styðja við orkuskiptin. Rafmagnsbílar eru mikilvægur hluti af ferlinu þar sem þeir valda minni losun og eru hagkvæmari í rekstri, sér í lagi á Íslandi. Á árinu felldum við niður lántökugjald á rafmagnsbílum og bjóðum upp á 0,6 prósentustiga afslátt við fjármögnun þeirra.

Kona og hundur úti í náttúru

Sjálfbær fjármögnun

Við bjóðum upp á sjálfbæra fjármögnun fyrirtækja. Verkefnið sem fjármagnað er þarf að uppfylla skilyrði og falla undir einn af þeim 11 verkefnaflokkum sem tilgreindir eru í sjálfbærri fjármálaumgjörð Landsbankans og stuðla að sjálfbærni.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.

Fjölskylda úti í náttúru
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur