Spá­um að verð­bólga lækki í 9,6% í fe­brú­ar

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,88% milli mánaða í febrúar. Gangi spáin eftir lækkar ársverðbólgan úr 9,9% í 9,6%. Spá okkar til næstu mánaða gerir ráð fyrir örlítið meiri verðbólgu en í síðustu spá sem við birtum í lok janúar. Við teljum engu að síður að verðbólgan hjaðni næstu mánuði.
16. febrúar 2023

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,85% milli mánaða í janúar og jókst ársverðbólgan úr 9,6% í 9,9%. Þetta er sama verðbólga og í júlí í fyrra, en það var áður hæsta gildið í núverandi verðbólgukúf. Óhætt er að segja að mælingin hafi komið okkur á óvart, en við áttum von á að verðbólgan myndi lækka út 9,6% í 9,4%. Langmestu munar um að verð á nýjum bílum hækkaði mun meira en við bjuggumst við.

Eigum von á að vísitalan hækki um 0,88% milli mánaða í febrúar og ársverðbólgan lækki úr 9,9% í 9,6%

Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,88% milli mánaða í febrúar. Gangi sú spá eftir mun ársverðbólgan lækka úr 9,9% í 9,6%. Það kann að skjóta skökku við að ársverðbólga lækki þrátt fyrir að vísitalan hækki verulega milli mánaða. Skýrist það af því að vísitalan hækkaði óvenju mikið milli mánaða í febrúar í fyrra, eða um 1,16%, og nú dettur sú mæling út úr ársverðbólgunni. Við erum því að miða við mun hærra upphafsgildi þegar við reiknum ársbreytinguna heldur en við gerðum í janúar.

Að þessu sinni eru það fimm undirliðir sem hafa mest áhrif á verðbólgu: Matarkarfan, reiknuð húsaleiga, föt og skór, og húsgögn, heimilisbúnaður, o.fl. vega til hækkunar á meðan flugfargjöld til útlanda vega til lækkunar, gangi spá okkar eftir.

Matarkarfan hækkar

Matarkarfan hækkaði um 2,0% í janúar. Mestu munaði um mikla hækkun á mjólk og mjólkurvörum, en verðlagsnefnd búvara tilkynnti um hækkun á verði mjólkur til bænda í janúar.  Án þessa hækkana hefði matarkarfan engu að síður hækkað um 1,2%. Verðhækkanir í matarkörfunni virðast því vera nokkuð almennar. Við eigum von á að matarkarfan í heild hækki um 1,2% milli mánaða núna í febrúar og að áhrif þess á vísitöluna verði 0,18 prósentur til hækkunar.

Fasteignaverð lækkar, en reiknaður kostnaður við að búa í eigin húsnæði hækkar vegna vaxtahækkana

Reiknað endurgjald við að búa í eigin húsnæði, þ.e. reiknuð húsaleiga, samanstendur af markaðsverði húsnæðis á landinu öllu ásamt framlagi vaxtabreytinga. Eftir miklar hækkanir undanfarið virðist loks vera að hægja á verðþróuninni. Þannig hefur húsnæðisverð eins og Hagstofan mælir það nú lækkað á milli mánaða, í tvo mánuði í röð. Við gerum ráð fyrir framhaldi á þessari þróun og að markaðsverð húsnæðis lækki um 0,1% milli mánaða núna í febrúar.

Framlag vaxtabreytinga fór lægst í 0,3 prósentustig til lækkunar vorið 2022. Síðan þá hefur það aukist samhliða hærri íbúðalánavöxtum og mælist nú til hækkunar á reiknaðri húsaleigu, alls 0,64 prósentur í janúar.  Við eigum von á að áhrif vaxtarliðarins verði svipuð í febrúar, en í útreikningum Hagstofunnar er miðað við 12 mánaða hlaupandi meðaltal á vöxtum verðtryggðra lána, þannig að janúar 2023 bætist inn í úrtakið og janúar 2022 dettur út. Í hvorugum mánuði var breyting á verðtryggðum vöxtum íbúðalána. Við eigum hins vegar von á að liðurinn hækki síðan í mars vegna nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans.  Alls gerum við því ráð fyrir að reiknuð húsaleiga hækki um 0,54% milli mánaða í febrúar og að áhrif þess á VNV verði 0,09% til hækkunar.

Útsölulok lita febrúarmælinguna venju samkvæmt

Á tímum faraldursins voru bæði júlí- og janúarútsölurnar nokkuð slakar. Líkleg skýring var aukin verslun Íslendinga innanlands á meðan utanlandsferðir voru fátíðar. Núna í janúar lækkuðu föt og skór um 8,4% og húsgögn og heimilisbúnaður um 5,5%, sem er mjög svipað og sást fyrir faraldur. Við eigum því von á að útsölulok verði einnig svipuð og fyrir faraldur. Munurinn á útsölulokum á fötum og skóm annars vegar og húsgögnum og heimilisbúnaði hins vegar er að útsölurnar á fötum og skóm eiga það til að dragast inn í febrúar, þ.e. ganga ekki að fullu til baka fyrr en í mars, á meðan útsölur á húsgögnum og heimilisbúnaði virðast oft hafa klárast í janúar. Við eigum því von á að föt og skór hækki um 3,4% í febrúar og 5,5% í mars en húsgögn og heimilisbúnaður og fl. hækki um 5,1% í febrúar og svo verði óveruleg breyting í mars. Alls eru áhrif útsöluloka í febrúar því 0,41 prósentur til hækkunar á vísitölunni í febrúar.

Flugfargjöld til útlandi lækka líklega

Flugfargjöld til útlanda hafa mestu áhrifin á ferðaliðinn, gangi spá okkar eftir. Flugfargjöld til útlanda lækka að jafnaði milli mánaða í febrúar, og gerum við ráð fyrir að svo verði líka núna. Við gerum ráð fyrir að þau lækki um 8,6% og áhrif þess verði 0,14 prósentur til lækkunar. Verðkönnun okkar bendir til þess að verð á 95 okt. bensín verði óbreytt milli mánaða, en díselolía hækki um 1,2%. Alls þýðir það að bensín og díselolía hækki um 0,3% milli mánaða. Eftir um 10% hækkun á verði á nýjum bílum í janúar gerum við ráð fyrir óbreyttu verði núna í febrúar.

Spá um febrúarmælingu VNV

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting Áhrif
Matur og drykkjarvara 15,30% 1,20% 0,18%
Áfengi og tóbak 2,50% 0,50% 0,01%
Föt og skór 3,10% 3,40% 0,11%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 10,40% 0,90% 0,09%
Reiknuð húsaleiga 19,90% 0,50% 0,11%
Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. 6,00% 5,10% 0,31%
Heilsa 3,70% 0,60% 0,02%
Ferðir og flutningar (annað) 3,90% 0,00% 0,00%
Kaup ökutækja 6,30% 0,00% 0,00%
Bensín og díselolía 3,80% 0,30% 0,01%
Flugfargjöld til útlanda 1,70% -8,60% -0,14%
Póstur og sími 1,50% 0,50% 0,01%
Tómstundir og menning 9,20% 1,00% 0,09%
Menntun 0,70% 0,00% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 4,90% 0,70% 0,03%
Aðrar vörur og þjónusta 7,00% 0,70% 0,05%
Alls 100,0%   0,88%

Verðbólguhorfurnar aðeins verri, en eigum samt von á hjöðnun

Spá okkar til næstu mánaða gerir ráð fyrir örlítið meiri verðbólgu en síðasta spá sem við birtum í lok janúar. Skýrist munurinn aðallega af því að við gerum núna ráð fyrir nokkuð hærra matvælaverði heldur en í janúar. Við eigum von á að vísitalan hækki um 0,58% milli mánaða í mars, 0,77% í apríl og 0,30% í maí. Gangi spá okkar eftir mun ársverðbólgan lækka niður í 9,3% í mars, 8,7% í apríl og 8,2% í maí.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Hagfræðideildar Landsbankans hf. (hagfraedideild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Hagfræðideild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
3. feb. 2025
Fréttabréf Greiningardeildar 3. febrúar 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Flutningaskip
3. feb. 2025
Aukinn halli af vöruviðskiptum í fyrra
Halli af vöruviðskiptum jókst í fyrra, en ekki með sama hraða og síðustu tvö ár þar á undan. Að það hægi á aukningunni gæti verið merki um að jafnvægi sé að aukast í hagkerfinu, en á móti kemur að innflutningsverðmæti hafa aldrei verið meiri sem gæti verið merki um aukin umsvif.
Seðlabanki Íslands
3. feb. 2025
Vikubyrjun 3. febrúar 2025
Verðbólga lækkaði á milli mánaða í janúar, úr 4,8% í 4,6%. Við eigum von á að Seðlabankinn lækki vexti um 0,5 prósentustig á miðvikudaginn. Fyrstu uppgjör fyrir árið 2024 komu í síðustu viku, en uppgjörstímabilið heldur áfram í þessari viku.
30. jan. 2025
Spáum vaxtalækkun um 0,5 prósentustig
Við spáum 0,5 prósentustiga vaxtalækkun í næstu viku. Verðbólga mældist 4,6% í janúar. Hún hjaðnaði í takt við spá okkar og hefur þokast niður um 0,5 prósentustig frá síðustu vaxtaákvörðun. Hægt hefur á íbúðaverðshækkunum og verðbólguvæntingar virðast stöðugri en áður. Laun hafa hækkað mun minna en áður og vinnumarkaður hefur leitað í eðlilegra horf.  
Fasteignir
30. jan. 2025
Verðbólga hjaðnar áfram
Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,27% á milli mánaða í janúar, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar því úr 4,8% í 4,6%. Við eigum enn von á að verðbólga hjaðni næstu mánuði og verði 3,9% í apríl.
Íbúðahús
27. jan. 2025
Vikubyrjun 27. janúar 2025
Í vikunni birtast verðbólgutölur fyrir janúar. Við eigum von á að verðbólga hjaðni og mælist 4,6%. Í síðustu viku birtist vísitala íbúðaverðs fyrir desember sem sýndi lækkun upp á 0,6% á milli mánaða. Vísitala leiguverðs sýndi einnig lækkun á milli mánaða, um 0,9%.
Bakarí
24. jan. 2025
Stöðugri vinnumarkaður og minna skrið launahækkana
Launavísitala Hagstofunnar hækkaði um 6,6% árið 2024. Á síðustu mánuðum hefur hægt verulega á launahækkunum, bæði vegna minni kjarasamningsbundinna hækkana en síðustu ár og minna launaskriðs. Kaupmáttur hefur því sem næst staðið í stað og óhætt að segja að staðan á vinnumarkaði styðji nú mun betur við verðstöðugleika en áður.
20. jan. 2025
Vikubyrjun 20. janúar 2025
Kortaveltutölur sem komu í síðustu viku voru nokkuð sterkar og sýndu að kortavelta heimilanna jókst nokkuð á milli ára í desember. Það voru tvö uppgjör í síðustu viku, Hagar og Ölgerðin, en fjárhagsár þessa tveggja félaga er, ólíkt öðrum félögum í kauphöllin, ekki hið sama og almanaksárið. Í vikunni fram undan fáum við vísitölur íbúðaverðs og leiguverðs frá HMS.
20. jan. 2025
Kortavelta landsmanna í sókn allt síðasta ár
Kortavelta landsmanna var alls 4,2% meiri á síðasta ári en árið 2023 og jókst milli ára alla mánuði ársins, miðað við fast verðlag og gengi. Telja má líklegt að Seðlabankinn fylgist vel með neyslustiginu í vaxtalækkunarferlinu og reyni að koma í veg fyrir að uppsafnaðar innistæður hrúgist út í neyslu. Neysla ferðamanna hér á landi mældist aðeins 1% meiri í fyrra en árið áður sé miðað við fast verðlag.
Pund, Dalur og Evra
17. jan. 2025
Krónan styrktist á síðasta ári
Krónan styrktist á móti evru en veiktist aðeins á móti Bandaríkjadal á árinu 2024. Árið var nokkuð rólegt á millibankamarkaði með gjaldeyri þar sem velta dróst saman og minna var um flökt.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur