Hagsjá: Spáum óbreyttum stýrivöxtum
Samantekt
Við teljum að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda stýrivöxtum óbreyttum á næsta fundi nefndarinnar, en ákvörðunin verður tilkynnt miðvikudaginn 29. ágúst nk. Við teljum fremur ólíklegt að nefndin ákveði lækkun eða hækkun vaxta. Hagtölur sem birst hafa frá síðustu vaxtaákvörðun nefndarinnar 13. júní síðastliðinn hafa ekki breytt stóru myndinni hvað varðar efnahagsþróunina næstu misseri að neinu ráði. Síðustu sex ákvarðanir nefndarinnar hafa verið óbreyttir vextir og eru meginvextir Seðlabankans, bundin innlán til 7 daga, nú 4,25%. Í öllum sex tilfellum voru allir fimm nefndarmenn sammála um að halda vöxtum óbreyttum.