Landsbankinn breytir vöxtum
Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,20 prósentustig. Fastir vextir á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum til 36 mánaða hækka um 0,15 prósentustig og fastir vextir á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum til 60 mánaða hækka um 0,10 prósentustig. Vextir á verðtryggðum íbúðalánum, bæði breytilegir og fastir, verða óbreyttir.
Kjörvextir á óverðtryggðum útlánum hækka um 0,20 prósentustig en kjörvextir á verðtryggðum útlánum verða óbreyttir. Breytilegir vextir óverðtryggðra lána vegna bíla- og tækjafjármögnunar hækka um 0,20 prósentustig en vextir verðtryggðra lána verða óbreyttir. Yfirdráttarvextir hækka um 0,25 prósentustig.
Vextir á óverðtryggðum sparireikningum hækka um 0,15-0,25 prósentustig, vextir á reikningum með föstum vöxtum hækka um 0,15-0,25 prósentustig en vextir almennra veltureikninga verða óbreyttir.
Ofangreind vaxtaákvörðun Landsbankans er tekin í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabanka Íslands frá 6. október sl. en þá hækkaði Seðlabankinn vexti um 0,25 prósentustig. Vaxtabreytingarnar taka einnig mið af ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði og öðrum fjármögnunarkjörum bankans.
Ný vaxtatafla bankans tekur gildi þriðjudaginn 19. október 2021. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.
![Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason](https://images.prismic.io/landsbankinn/ZnRdHZm069VX17b8_landsbankinn_defend_iceland.jpg?fit=max&w=3840&rect=219,0,3201,2401&q=50)
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/34b0b00d-b34e-45f0-9b83-f017144502e2_1920px_Nikki_V4A7550.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,479,1281,961&q=50)
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/34b0b00d-b34e-45f0-9b83-f017144502e2_1920px_Nikki_V4A7550.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,479,1281,961&q=50)
![Grænland](https://images.prismic.io/landsbankinn/ZlCHdCol0Zci9bJI_Gr%C3%A6nland.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,5,1600,1200&q=50)
![Netöryggi](https://images.prismic.io/landsbankinn/f42fdc35-e151-459a-801d-e531af81adc9_LB_Netoryggi_Folsk_skilabod_1920x1080_6.jpg?fit=max&w=3840&rect=240,0,1440,1080&q=50)
![Námsstyrkir 2024](https://images.prismic.io/landsbankinn/Zl3eBZm069VX1alz_4M6A0671.jpg?fit=max&w=3840&rect=223,63,1511,1133&q=50)
![Skólahreysti 2024](https://images.prismic.io/landsbankinn/ZlSG_Ck0V36pXqGI_skolahreysti-2024-floaskoli.jpg?fit=max&w=3840&rect=469,323,1276,957&q=50)
![Netöryggi](https://images.prismic.io/landsbankinn/a4f91a12-f6c1-4ce2-a703-d1175758ccdd_Netoryggi_1920-1080_031121.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,0,2880,2160&q=50)
![Austurbakki](https://images.prismic.io/landsbankinn/1243cec5-62aa-4133-b98d-d73b70f4c9e7_Landsbanki_Head_Offices_03737.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,1078,1440,1080&q=50)
![Plúskort](https://images.prismic.io/landsbankinn/Zk3NHyol0Zci9WR3_pluskort-mynd.png?fit=max&w=3840&rect=0,135,1080,810&q=50)