Reynir Smári Atlason til Landsbankans
Reynir er einn af stofnendum ráðgjafarfyrirtækisins Circular Solutions og hefur í gegnum störf sín komið að flestum grænum skuldabréfaútgáfum hér á landi, ásamt því að aðstoða mörg af stærstu fyrirtækjum landsins við upplýsingagjöf um samfélagsábyrgð og sjálfbærni.
Reynir lauk doktorsprófi í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands árið 2015. Hann starfaði sem lektor við verkfræðideild Háskólans í Suður-Danmörku (SDU) frá 2015 til 2019. Á undanförnum árum hefur hann birt fjölda ritrýndra greina og bókakafla á sviði umhverfisvísinda og sjálfbærni.
Landsbankinn hefur tekið framsækin skref á vettvangi samfélagsábyrgðar á undanförnum árum og mun Reynir bætast í hóp þeirra sem vinna að því að fylgja markmiðunum eftir, meðal annars hvað varðar ábyrgar fjárfestingar, upplýsingagjöf til hagsmunaaðila, sjálfbærniáhættu og fleira. Reynir mun hefja störf 1. október.