Vikan framundan
- Í dag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs.
- Á miðvikudag verða birtar verðbólgutölur í Bretlandi.
- Á fimmtudag er vaxtaákvörðun hjá Englandsbanka.
Mynd vikunnar
Atvinnulausum á skrá hjá Vinnumálastofnun hefur fjölgað á milli ára í næstum öllum atvinnugreinum. Hlutfallslega eykst atvinnuleysi mest í gistiþjónustu og byggingariðnaði. Skráðum gistinóttum hefur fækkað lítillega milli ára sem gæti skýrt fjölgun atvinnulausra í þeirri grein. Erfiðara er að segja til um horfur í byggingariðnaði, enda berast misvísandi gögn um umsvif í greininni. Sem dæmi jókst fjárfesting í íbúðarhúsnæði um tæp 16% á milli ára á fyrsta fjórðungi þessa árs samkvæmt þjóðhagsreikningum, en samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað sífellt síðasta árið.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Um 155 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Leifsstöð í maí. Það eru 2,3% færri brottfarir en í maí í fyrra. Þetta er annan mánuðinn í röð sem erlendum ferðamönnum fækkar á milli ára, en í fækkun milli ára í apríl má þó líklega skýra með tímasetningu páskanna í ár. Erlendum ferðamönnum hefur það sem af er ári fjölgað um 3,9% frá sama tíma í fyrra, þrátt fyrir samdrátt á síðustu mánuðum.
- Atvinnuleysi mældist 3,4% í maí og minnkaði úr 3,6% frá því í aprílmánuði, en atvinnuleysi minnkar alla jafna eftir því sem nær dregur sumri. Atvinnuleysi var 3,0% í maí í fyrra og hefur síðustu mánuði verið 0,3-0,4 prósentustigum yfir því sem það var á sama tíma á síðasta ári. Að meðaltali voru 6.041 atvinnulausir á landinu í maí.
- Kortavelta íslenskra heimila jókst um 4,3% á milli ára, á föstu verðlagi í maí. Síðustu mánuði hefur kortavelta nær alltaf dregist saman á milli ára en eykst nú meira en hún hefur gert allt frá því í janúar 2023. Þessi aukna kortavelta vekur athygli í þrálátu hávaxtastigi og samdrætti í hagkerfinu á fyrsta ársfjórðungi.
- Í vikunni fóru fram verðmælingar fyrir júnímælingu vísitölu neysluverðs hér á landi. Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,47% á milli mánaða í júní og að ársverðbólga lækki við það úr 6,2% í 5,8%.
- Verðbólga í Bandaríkjunum mældist 3,3% í maí og hjaðnaði um 0,1 prósentustig á milli mánaða. Seðlabanki Bandaríkjanna hélt vöxtum óbreyttum í samræmi við væntingar.
- Reitir, Orkuveita Reykjavíkur, Arion banki og Landsbankinn héldu skuldabréfaútboð. Lánamál ríkisins hélt útboð ríkisvíxla. Íslandsbanki tilkynnti um endurkaupatilboð á skuldabréfum í evrum.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
![Flugvél á flugvelli](https://images.prismic.io/landsbankinn/c68d10e5-e50c-4447-8778-bd06a35cab8f_Jet-Brussels-iStock-1161966623.jpg?fit=max&w=3840&rect=1119,770,2455,1841&q=50)
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/2fffc01a-44b7-44ee-bdc1-b8bd2c29c1ea_5.jpg?fit=max&w=3840&rect=55,0,1708,1281&q=50)
![Bílar](https://images.prismic.io/landsbankinn/135415c5-fb94-4d8d-8130-b0c165cf7c82_LB_Brimborg_Festi_V4A9178_1920.jpg?fit=max&w=3840&rect=94,295,1305,979&q=50)
![Paprika](https://images.prismic.io/landsbankinn/a06f0e51-f8d7-4614-95bf-d3f9a1b06eba_Paprika-iStock-518590344-2020.jpg?fit=max&w=3840&rect=210,0,1600,1200&q=50)
![Fjölbýlishús](https://images.prismic.io/landsbankinn/d1432608-ac46-49b6-b68a-6f93b661de51_Fjolbylishus-nylegt.jpg?fit=max&w=3840&rect=371,405,853,640&q=50)
![Strönd](https://images.prismic.io/landsbankinn/e7bb6ded-8c84-494c-9fab-7d306deb67ff_strandlengja.jpg?fit=max&w=3840&rect=1909,691,3185,2389&q=50)
![Frosnir ávextir og grænmeti](https://images.prismic.io/landsbankinn/8452cf5e-0ca8-451f-aef8-e1ba9d5f6163_Frosnir-avextir.jpg?fit=max&w=3840&rect=292,0,4645,3484&q=50)
![Ferðafólk](https://images.prismic.io/landsbankinn/f53b6c0f-386f-4b66-ab49-15169d8feeb1_Ferdafolk-a-halendi.jpg?fit=max&w=3840&rect=1146,1088,1833,1375&q=50)
![Seðlabanki Íslands](https://images.prismic.io/landsbankinn/d633164a-2af2-4a30-90a9-4db379b86373_MBL0019286-Se%C3%B0labanki-1920.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,50,1920,1440&q=50)
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/dcdf9961-3990-46d9-b86e-8010418b2e70_Grafik-linurit-16-9.jpg?fit=max&w=3840&rect=228,0,3643,2732&q=50)