Einkabankaþjónusta
Byggjum upp öflugt eignasafn
- Heildstæð fjármálaþjónusta á hagstæðari kjörum
- Sérfræðingar sjá um eignasafn þitt
Persónuleg þjónusta
Við aðstoðum einstaklinga sem vilja byggja upp sterkt eignasafn og njóta um leið sérfræðiráðgjafar í fjárfestingum og bankaþjónustu.
Hvaða þjónustuleið hentar þér?
Viðskiptastjórar Einkabankaþjónustu hjálpa þér að leita leiða til að tryggja fjárhagslegt öryggi þitt og þinna nánustu til frambúðar. Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á tvær ólíkar þjónustuleiðir, allt eftir þekkingu á fjármálamörkuðum og fjárhagsstöðu.
Eignastýring
Með þjónustuleiðinni Eignastýring finnum við fjárfestingarstefnu sem hentar þínum fjárfestingartíma og áhættuvilja, og er eignum þínum stýrt í samræmi við þá fjárfestingarstefnu.
Fjárfestingarráðgjöf
Aftur á móti hentar fjárfestingarráðgjöf þér sem fylgist vel með fjármálamörkuðum og hefur ákveðnar skoðanir á fjárfestingum. Í fjárfestingarráðgjöf er viðskiptastjóri Einkabankaþjónustu ráðgefandi en þú átt síðasta orðið um fjárfestingar. Lágmarks fjárhæð í fjárfestingarráðgjöf er 75 milljónir krónur.
Við erum til staðar
Viðskiptastjórar Einkabankaþjónustu hjálpa þér að tryggja fjárhagslegt öryggi þitt og þinna nánustu til frambúðar
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.