Skemu
Vefþjónustur íslenskra banka
Tvö tungumál eru í gangi í B2B vefþjónustum íslenskra banka og nefnast þau skemu. Annað skemað er sérhæft innan hvers banka um sig, sem þýðir að bankarnir skilja ekki „tungumál“ hvors annars. Landsbankinn er með sitt eigið Landsbankaskema og þannig gengur þetta koll af kolli milli fjármálastofnana. Hitt skemað er sameiginlegt tungumál allra banka og sparisjóða hérlendis og nefnist í daglegu tali sambankaskema og er ýmist skammstafað IOBS eða B2Bws. Það tungumál kom fyrst út árið 2005 og var svo endurskilgreint árið 2013.
Sambankaskema 2013
Hér er að finna handbækur, sýnidæmi og annað ítarefni sem hugbúnaðaraðilar leggja til grundvallar við innleiðingu 2013 útgáfunnar af sambankaskemanu. Vinsamlega sendið ábendingar varðandi sjálfa skjölunina til Staðlaráðs Íslands á netfangið stadlar@stadlar.is en leitið til Landsbankans með önnur erindi tengd efninu.
Sambankaskema 2005
Hér er að finna handbækur, sýnidæmi og annað ítarefni sem hugbúnaðaraðilar leggja til grundvallar við innleiðingu 2005 útgáfunnar af sambankaskemanu.
Landsbankaskema
Hér er að finna handbækur, sýnidæmi og annað ítarefni sem hugbúnaðaraðilar leggja til grundvallar við innleiðingu Landsbankaskemans.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.