Í hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og ferðaþjónustuna. Meðal annars er komið inn á nýja verðbólguspá Hagfræðideildar, áhrif síðustu stýrivaxtahækkunar, hækkandi bensínverð og álverð, minnkandi atvinnuleysi og áhrif góðrar loðnuvertíðar á hagvöxt.
Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans, Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum og Gústaf Steingrímsson, sérfræðingur í Hagfræðideild taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans.
Hlusta og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á streymisveitu
Um hlaðvarpið
Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem verðbréfagreinendur í Landsbankanum og sérfræðingar í Hagfræðideild bankans ræða um hlutabréfamarkaðinn og efnahagsmál frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um hlutabréfamarkaði og efnahagsmál.