Fréttir

Upp­lýs­ing­ar um banka­þjón­ustu við Grind­vík­inga

Grindavík
16. nóvember 2023

Á meðan útibúið okkar í Grindavík er lokað, tökum við vel á móti Grindvíkingum í öðrum útibúum bankans. Það er einfalt að bóka tíma á vefnum og hægt er að velja á milli þess að fá símtal, fjarfund eða fund í því útibúi sem hentar. Landsbankinn er með útibú um allt land.

Atburðirnir gætu valdið því að margir einstaklingar verði fyrir tekjufalli og áhrifin eru sömuleiðis mikil á fyrirtæki í bæjarfélaginu. Við erum með ýmis úrræði í boði, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Ef viðskiptavinir þurfa aðstoð eða vilja fara yfir fjármálin hvetjum við þá til að hafa samband við okkur.

Einfalt að fresta afborgunum (frysta)

Margir viðskiptavinir okkar í Grindavík eru með íbúðalán og þeir geta allir fengið að fresta afborgunum af lánunum. Hafðu samband við okkur ef þú vilt fresta afborgunum. Þú getur pantað tíma á landsbankinn.is eða sent okkur tölvupóst á landsbankinn@landsbankinn.is.

Hægt er að fresta afborgunum í allt að sex mánuði. Það er einfalt og fljótlegt og engin gjöld falla á viðskiptavini okkar í Grindavík vegna þess.

Margir viðskiptavinir eru með geymsluhólf í útibúinu. Geymsluhólf sem voru í útibúinu í Grindavík voru flutt í útibú Landsbankans í Mjódd miðvikudaginn 15. nóvember. Starfsfólk bankans í Grindavík hefur, eins og aðrir íbúar bæjarins, fengið húsaskjól í öðrum bæjarfélögum og þau munu öll halda áfram störfum fyrir bankann, ýmist í öðrum útibúum eða í fjarvinnu á meðan lokað er í Grindavík.

Starfsfólk bankans í Grindavík hefur, eins og aðrir íbúar bæjarins, fengið húsaskjól í öðrum bæjarfélögum og þau munu öll halda áfram störfum fyrir bankann, ýmist í öðrum útibúum eða í fjarvinnu á meðan lokað er í Grindavík.

Við fylgjumst vel með stöðunni og munum setja frekari upplýsingar hér á vefinn.

Fréttin var fyrst birt 13. nóvember 2023 og síðast uppfærð 16. nóvember 2023.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Grindavík
18. nóv. 2023
Viðbrögð við stöðu Grindvíkinga eru til skoðunar
Það er mjög erfitt að gera sér í hugarlund þá óvissu sem ríkir meðal Grindvíkinga. Hugur alls starfsfólks bankans er hjá bæjarbúum. Við erum stolt af öflugu útibúi okkar í Grindavík og af að eiga marga trausta og góða viðskiptavini í bæjarfélaginu, bæði einstaklinga og fyrirtæki.
Grindavík
16. nóv. 2023
Geymsluhólf úr Grindavík hafa verið flutt í útibúið í Mjódd
Geymsluhólf sem voru í útibúinu í Grindavík voru seinnipartinn í gær, miðvikudaginn 15. nóvember, flutt í útibú Landsbankans í Mjódd. Í útibúinu í Grindavík voru um 150 geymsluhólf. Þau verða aðgengileg fyrir viðskiptavini frá og með morgundeginum, föstudegi 17. nóvember.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur