Stefna

Reykjastræti

Lands­banki nýrra tíma

Með Lands­banka nýrra tíma vilj­um við ein­falda líf við­skipta­vina.

Kraftur til breytinga og þróunar

Við viljum nýta alla kosti tækninnar án þess að glata því mannlega í okkar starfi. Samhliða þessu endurspeglar stefnan kraft til umbreytinga og framþróunar.

Landsbanki nýrra tíma snýst um að einfalda líf viðskiptavina með aðgengilegri, öruggri en jafnframt mannlegri bankaþjónustu.

Þessu er náð fram með hagnýtingu á tækni, stöðugri framför, traustum rekstri og árangursdrifinni menningu.

Starfsemi og árangur bankans hefur jákvæð áhrif á íslenskt samfélag.

Traustur banki fyrir farsæla framtíð

Landsbanki nýrra tíma styður með beinum hætti við tilgang Landsbankans sem er að vera traustur banki fyrir farsæla framtíð. Sú setning fangar vel kjarna bankans og á rætur sínar að rekja allt til stofnunar Landsbanka Íslands árið 1886.

Hrafn og Edda

Traust er lykilþáttur í starfsemi bankans

Gildi bankans er traust og er það lykilþáttur í allri starfsemi bankans, hvort sem horft er til samskipta við viðskiptavini, birgja, samstarfsfólk eða átt er við rekstur bankans og almenna starfsemi. Viðskiptavinir geta treyst því að við séum til staðar og að rekstur bankans sé í öruggum höndum.

Reykjastræti

Stoðir stefnunnar

Stefnan er studd af fjórum styrkum stoðum sem byggja undir þá grunnþætti sem nauðsynlegir eru til að ná framúrskarandi árangri til framtíðar.

Jákvæð áhrif

Landsbankinn er hluti af umhverfi sínu, íslensku samfélagi. Við leggjum ríka áherslu á að vera jákvætt hreyfiafl um allt land og stuðla að farsælli framtíð lands og þjóðar. Jákvæð áhrif bankans eru mæld með þátttöku í samfélaginu, arðgreiðslum og árangri í sjálfbærnivinnu.

Ánægðir viðskiptavinir

Hér er áherslan á að einfalda viðskiptavinum lífið og fanga jafnframt mannlega þáttinn í þjónustu Landsbankans. Við finnum stöðugt leið til að gera enn betur og leysa áskoranir á farsælan hátt. Í því felst frumkvæði og það hugarfar sem Landsbanki nýrra tíma byggir á. Við setjum ánægju viðskiptavina í fyrsta sæti og viljum bjóða upp á aðgengilega og örugga bankaþjónustu hvar og hvenær sem er.

Stöðug framför

Stöðugur og traustur rekstur ásamt góðum efnahag eru forsenda þess að skapa rými til framfara þar sem starfsemin verður stöðugt snjallari. Nýjungar í tækni nýtast ekki einvörðungu í þróun á þjónustu fyrir viðskiptavini heldur einnig í að treysta rekstur bankans og tryggja með sem bestum hætti stöðugleika í fjármálaþjónustu. Traustur rekstur snýst að miklu leyti um það sem ekki sést en er engu að síður undirstaða og forsenda fyrir framþróun. Þessi hluti byggir ekki síst á metnaði og jákvæðu hugarfari til breytinga. Á bak við góðan árangur stendur öflugur hópur starfsfólks sem sinnir mikilvægum verkefnum tengdum rekstri, skilvirkni, framþróun, gæðum, fjármögnun, uppgjöri, eftirliti og fleiri ómissandi þáttum.

Við elskum árangur

Vinnustaðurinn á að vera umhverfi þar sem aðstæður til að ná góðum árangri fyrir viðskiptavini og starfsfólk eru sem bestar. Við elskum árangur vísar í persónulegan árangur en líka sameiginlegan árangur sem jákvæður og lausnamiðaður hópur starfsfólks þvert á bankann nær og birtist í framúrskarandi þjónustu. Fyrirtækjamenningin er árangursdrifin með hagsmuni viðskiptavina, samfélags, samstarfsfólks og eigenda í huga.

Skýr markmið til stuðnings stefnu

Forsenda árangurs er að allir stefni í sömu átt. Landsbanki nýrra tíma liggur til grundvallar viðskiptaáætlun bankans hverju sinni og er rauði þráðurinn í  því sem bankinn tekur sér fyrir hendur. Skýr lykilmarkmið, studd með áhersluverkefnum, markvissri framkvæmd og vel ígrunduðum ákvörðunum með langtímahagsmuni að leiðarljósi skila sér í traustum banka fyrir farsæla framtíð. 

Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur