Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,75 prósentustiga hækkun stýrivaxta í næstu viku. Verðbólguhorfur versnuðu í febrúar, verðbólgan er almennari en áður og verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hefur aukist. Þrátt fyrir að meginvextir bankans hafi hækkað úr 0,75% í 6,5% á tæpum tveimur árum virðast þeir síður en svo hafa dregið allan þrótt úr hagkerfinu.
Í þættinum ræða hagfræðingarnir Una Jónsdóttir og Hildur Margrét Jóhannsdóttir stýrivaxtaspána og stikla á stóru um stöðuna í hagkerfinu.
Hlusta og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á streymisveitu
Um hlaðvarpið
Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem sérfræðingar í Landsbankanum ræða um hlutabréfamarkaðinn og efnahagsmál frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um hlutabréfamarkaði og efnahagsmál.









