Verðbólgan er erfið viðureignar. Seðlabankar heims hækka vexti og víða er hætta á samdrætti. Við fengum til okkar góðan gest, James Ashley frá eignastýringu Goldman Sachs og ræddum við hann um horfur á markaði og efnahagsmálin í alþjóðlegu samhengi.
Ashley er forstöðumaður stefnumála og ráðgjafalausna fyrir Evrópu, Miðausturlönd, Afríku og Asíu hjá eignastýringu Goldman Sachs. Hann ræðir við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfæðideildar og Rún Ingvarsdóttur, sérfræðing í samskiptamálum hjà bankanum.
Hlusta og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á streymisveitu
Um hlaðvarpið
Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem sérfræðingar í Landsbankanum ræða um hlutabréfamarkaðinn og efnahagsmál frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um hlutabréfamarkaði og efnahagsmál.