Íbúðamarkaður fer kólnandi, eftirspurnin hefur róast og margt bendir til kröftugrar íbúðauppbyggingar. Vextir hafa hækkað, greiðslubyrði eykst og verðtryggð íbúðalán ryðja sér til rúms á ný.
Þetta er á meðal viðfangsefna nýjasta hlaðvarpsþáttarins. Una Jónsdóttir, forstöðumaður Hagfræðideildarinnar, Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur og Jónas R. Stefánsson, sérfræðingur á Einstaklingssviði bankans, taka stöðuna á íbúðamarkaði.
Hlusta og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á streymisveitu
Um hlaðvarpið
Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem sérfræðingar í Landsbankanum ræða um hlutabréfamarkaðinn og efnahagsmál frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um hlutabréfamarkaði og efnahagsmál.