Hvað þýðir það að stýrivextir hækki og hvaða áhrif hefur það á fólkið í landinu? Hvernig hafa vaxtahækkanir áhrif á verðbólgu og af hverju fer kaupmáttur lækkandi? Hvernig er staðan í löndunum í kringum okkur og hver er reynslan af því að lækka vexti í mikilli verðbólgu?
Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson og Ari Skúlason, hagfræðingar hjá Landsbankanum, við Rún Ingvarsdóttur sérfræðing á samfélagssviði bankans, um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, vinnumarkaðinn, verðbólguhorfur og þróun efnhagslífsins.
Hlusta og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á streymisveitu
Um hlaðvarpið
Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem sérfræðingar í Landsbankanum ræða um hlutabréfamarkaðinn og efnahagsmál frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um hlutabréfamarkaði og efnahagsmál.









