Af hverju er Seðlabankinn að hækka vexti um heilt prósentustig og hvaða áhrif hefur það á efnahagslífið og fólkið í landinu? Af hverju tekur Seðlabankinn þetta stóra skref núna og hvernig lítur framhaldið út varðandi verðbólgu og efnahagsþróun?
Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson hagfræðingur hjá Landsbankanum, Ægir Örn Gunnarsson sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum og Rún Ingvarsdóttir sérfræðingur á Samfélagssviði hjá bankanum, um efnahagsmál og þróunina á fjármálamörkuðum.
Hlusta og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á streymisveitu
Um hlaðvarpið
Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem sérfræðingar í Landsbankanum ræða um hlutabréfamarkaðinn og efnahagsmál frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um hlutabréfamarkaði og efnahagsmál.









