Landsbankinn styrkir fimmtán framúrskarandi námsmenn
Landsbankinn úthlutaði námsstyrkjum til fimmtán námsmanna úr Samfélagssjóði bankans þann 1. júlí sl. Styrkirnir voru veittir í þrítugasta og fyrsta skipti. Heildarupphæð námsstyrkjanna nemur sex milljónum króna. Alls bárust rúmlega 500 umsóknir í ár en Landsbankinn er eini bankinn sem veitir námsstyrki.
Veittir eru styrkir í fimm flokkum til framhaldsskólanema, iðn- og verknema, háskólanema, til háskólanema í framhaldsnámi og listnema.
Dómnefndin leitaðist við að velja metnaðarfulla, framúrskarandi námsmenn með athyglisverða framtíðarsýn sem nefndin taldi líklega til að auðga íslenskt samfélag í framtíðinni. Einnig var litið til annarra atriða við valið, svo sem rannsókna og greinaskrifa, sjálfboðaliðastarfa, þátttöku í íþróttum og í félagsstarfi, svo nokkuð sé nefnt.
Styrkþegar námsstyrkja Landsbankans 2020
Styrkir til framhaldsskólanáms – 200.000 kr. hver
- Áróra Friðriksdóttir – Kvennaskólinn í Reykjavík
- Klara Margrét Ívarsdóttir – Verzlunarskóli Íslands
- Sigrún Ásta Jónsdóttir – Gribskov framhaldsskólinn
Styrkir til iðn- og verknáms – 400.000 kr. hver
- Guðrún Svava Gomez – bifvélavirkjun við Meistaraskólann
- Njáll Halldórsson – flugnám við Flugskóla Íslands
- Tinna Marín K. Norðdahl – atvinnuflugnám hjá Keili
Styrkir til háskólanáms – 400.000 kr. hver
- Benedikt Fadel Farag – byggingaverkfræði við Háskóla Íslands
- Sólveig Hrönn Hilmarsdóttir – fornfræði, latína og gríska við Háskóla Íslands
- Vigdís Gunnarsdóttir – stærðfræði við Háskóla Íslands
Styrkir til háskólanáms á framhaldsstigi – 500.000 kr. hver
- Bríet Dögg Bjarkadóttir – doktorsnám í læknavísindum við Oxford-háskóla
- Esther Hallsdóttir – meistaranám í opinberri stefnumótun við Harvard-háskóla
- Kjartan Pálsson – meistaranám í stærðfræði og gervigreind við Oxford-háskóla
Styrkir til listnáms – 500.000 kr. hver
- Benedikt Gylfason – grunnnám í klassískum ballet við Listaháskólann í Osló
- Gríma Eir Geirs Irmudóttir – heimildarmyndagerð við Listaháskólinn í London
- Ragnar Jónsson – meistaranám í sellóleik við Tónlistarskólann í Mannheim.
Í dómnefnd sátu: Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor við Háskóla Íslands, Jakobína H. Árnadóttir, mannauðsráðgjafi, Guðrún Norðfjörð, markaðsstjóri Forlagsins og Baldur G. Jónsson, mannauðsstjóri Landsbankans.