Vikan framundan
- Í dag birtir Hagstofan ágústmælingu vísitölu neysluverðs.
- Á þriðjudag birtir Hagstofan þjóðhagsreikninga. Síminn birtir árshlutauppgjör.
- Á miðvikudag birtir Sýn uppgjör.
- Á fimmtudag birtir Seðlabankinn greiðslujöfnuð.
Mynd vikunnar
Í nýjasta hefti Peningamála Seðlabankans kemur fram að útlán til fyrirtækja hafi nánast staðið í stað á síðasta ári. Á öðrum ársfjórðungi 2021 hafa þau dregist saman um 2% en um 0,7% að teknu tilliti til áhrifa gengisbreytinga á fyrirtækjalán í erlendum gjaldmiðlum. Útlán til heimila hafa hins vegar aukist það sem af er ári og mældist um 11,3% aukning á öðrum fjórðungi ársins. Aukin útlán til heimila eru nær einvörðungu tilkomin vegna aukinna íbúðalána.
Efnahagsmál
- Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkaði vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans (7 daga bundin innlán) verða því 1,25%. Þetta kom okkur á óvart, en við höfðum spáð óbreyttum vöxtum.
- Samhliða vaxtaákvörðuninni birti SÍ ágústhefti Peningamála með uppfærðri verðbólgu- og þjóðhagsspá. SÍ hækkaði spá sína um verðbólgu á öðrum helmingi þessa árs og fyrri helmingi næsta árs, en gerir áfram ráð fyrir því að verðbólgumarkmið náist á seinni helmingi næsta árs. SÍ hækkaði hagvaxtarspá sína frá því í maí úr 3,1% í 4,0%. Að einhverju leyti er þetta tilfærsla frá 2022, en SÍ lækkaði spá sína um hagvöxt 2022 úr 5,2% í 3,9%.
- Hallinn á vöru- og þjónustujöfnuði nam 30,5 mö. kr. á 2. ársfjórðungi og jókst um 13,3 ma. kr. milli ára. Aukinn halli skýrist af mikilli aukningu í vöruinnflutningi. Á móti jókst útflutningsverðmæti sjávarafurða vegna loðnuvertíðar. Útflutningsverðmæti áls og álafurða jókst vegna hækkana á álverði, og útfluttrar ferðaþjónustu vegna fjölgunar erlendra ferðamanna.
- Launavísitalan lækkaði um 0,1% milli mánaða í júlí. Tólf mánaða hækkun launavísitölunnar er 7,8%. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 4,3% á sama tímabili, sem þýðir að kaupmáttaraukningin á milli ára er 3,4%. Opinberi markaðurinn er að hækka meiri en almenni markaðurinn.
- Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands var árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 5,2% af vinnuafli í júlí og árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka 78,7%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hefur lækkað um 0,4 prósentustig á milli mánaða og 2,5 prósentustig milli ára.
- Hagstofan birti skammtímavísa ferðaþjónustu, tilraunatölfræði um eldsneytissölu á 2. ársfjórðungi, aflaverðmæti 2020 og veltu skv. virðisaukaskattskýrslum fyrir maí-júní.
- Fjársýsla ríkisins birti hálfsársuppgjör. Afkoma ríkissjóðs var nokkuð betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, aðalega vegna meiri tekjuvöxt en búist var við.
- Seðlabankinn birti talnaefni um bankakerfið m.v. lok júlí.
- Þjóðskrá birti vísitölu leiguverðs í júlí og upplýsingar um fyrstu kaupendur á fasteignamarkaði.
Fjármálamarkaðir
- Brim, Eik, Iceland Seafood, Kvika banki, Origo, Reitir og Síldarvinnslan birtu hálfsársuppgjör.
- Eftirfarandi útgefendur skráðra skuldabréfa birtu hálfsársuppgjör: Byggðastofnun, Íslandshótel, Lánasjóður sveitarfélaga, Orkuveita Reykjavíkur og Reykjavíkurborg.
- Lánamál ríkisins birti niðurstöðu viðbótarútgáfu í tengslum við útboðið 20. ágúst.