Fréttir

Sjálf­bærni­dag­ur Lands­bank­ans í Grósku 7. sept­em­ber

31. ágúst 2023 - Landsbankinn

Sjálfbærnidagur Landsbankans verður haldinn, fimmtudaginn 7. september kl. 9.00 - 11.30 í Grósku, Bjargargötu 1. 

Húsið opnar og við bjóðum upp á morgunhressingu frá kl. 8.30. Að fundi loknum verður boðið upp á léttan hádegisverð. 

Dagskrá fundarins

  • Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, setur fundinn.
  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flytur ávarp.
  • Dr. Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands: Aðlögun samfélags að breyttum heimi.
  • Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair: Leiðin að kolefnishlutlausu flugi.
  • Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar: Allar vegasamgöngur alfarið á 100% rafmagni.
  • Sunna Hrönn Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og rekstrar hjá Regin: Fasteignafélag fyrir nýja framtíð. Stefna og áherslur Regins í sjálfbærni.

Við fáum auk þess örkynningar frá Plastplani, sem hannar og framleiðir vörur úr endurunnu plasti, og Álfi brugghúsi sem m.a. bruggar bjór úr kartöfluafskurði sem annars hefði farið til spillis. Boðið verður upp á að smakka bjórinn í Grósku.

Fundarstjóri er Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sjálfbærnistjóri Landsbankans.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Lúðrasveit á Menningarnótt
21. ágúst 2024
Dagskrá Landsbankans á Menningarnótt
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 24. ágúst næstkomandi. Landsbankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að venju upp á fjölbreytta dagskrá, bæði í Reykjastræti og við Hörputorg í samstarfi við Hafnartorg og Hörpu.
Eystra horn
19. ágúst 2024
Landsbréf skila góðum árangri á fyrri hluta ársins
Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2024.
Flutningaskip við Vestmannaeyjar
2. ágúst 2024
Útibúið í Eyjum lokar á hádegi föstudag; öll útibú lokuð á frídegi verslunarmanna
Vegna Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum lokar útibú Landsbankans í Eyjum klukkan 12 á hádegi í dag, föstudaginn 2. ágúst. Öll útibú bankans verða lokuð á frídegi verslunarmanna mánudaginn 5. ágúst.
Netbanki
19. júlí 2024
Upplýsingar vegna kerfisbilunar
Engar truflanir eru lengur á þjónustu bankans. Í nótt og í morgun voru truflanir á ýmsum þjónustuþáttum sem tengdust bilun sem haft hefur áhrif á fyrirtæki víða um heim.
15. júlí 2024
Níu atriði fengu úthlutun úr Gleðigöngupottinum
Landsbankinn er stoltur styrktaraðili Hinsegin daga. Dómnefnd Gleðigöngupotts Hinsegin daga og Landsbankans hefur úthlutað styrkjum til níu atriða í Gleðigöngunni.
Stúlka með síma
12. júlí 2024
Enn einfaldara að byrja að nota Landsbankaappið
Nýskráning í Landsbankaappið hefur aldrei verið einfaldari og nú geta allir prófað appið án nokkurra skuldbindinga. Með þessu opnum við enn frekar fyrir aðgang að þjónustu Landsbankans.
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur