Viku­byrj­un 25. mars 2024

Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti á miðvikudag að stýrivöxtum yrði haldið óbreyttum í 9,25%. Ákvörðunin var í samræmi við spá okkar, en tónninn í yfirlýsingunni var harðari en við bjuggumst við.
Seðlabanki
25. mars 2024

Vikan framundan

Mynd vikunnar

Stýrivextir verða áfram 9,25%, samkvæmt ákvörðun Peningastefnunefndar sem var tilkynnt á miðvikudag. Ákvörðunin kom ekki á óvart, en við höfðum þó spáð því að tónninn í yfirlýsingunni yrði mildari en hann var. Í yfirlýsingu nefndarinnar kom fram að þó verðbólga hefði hjaðnað lítillega í febrúar væri hún þrálát og verðbólguvæntingar enn yfir markmiði. Þá kom fram að endurskoðun Hagstofunnar á þjóðhagsreikningum sýndi að spenna í þjóðarbúinu væri meiri en áður hefði verið talið, sem gæti haft í för með sér meira launaskrið en ella. Að lokum gætu aðgerðir í ríkisfjármálum aukið eftirspurn og verðbólguþrýsting. Hagfræðideild fjallaði um ákvörðunina í Umræðunni, hlaðvarpi Landsbankans.

Það helsta frá vikunni sem leið

  • Á þriðjudag birti HMS nýja vísitölu íbúðaverðs, og uppfærði ekki þá gömlu. Ný vísitala byggir á nýrri aðferðafræði og er ekki samanburðarhæf við þá gömlu. Ný vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,9% á milli mánaða í febrúar en lækkaði um 1% mánuðinn á undan. Þótt nýja vísitalan virðist sveiflast meira milli mánaða en sú gamla er árshækkunin svipuð. Árshækkun nýju vísitölunnar var 5,7% í febrúar, en árshækkun þeirrar gömlu var 5,4% í janúar.
  • Á miðvikudag birti Peningastefnunefnd ákvörðun um að halda vöxtum óbreyttum í 9,25%.
  • Á fimmtudag birti Hagstofa Íslands uppfærðar mannfjöldatölur sem byggja á nýrri aðferðafræði. Hingað til var aðeins byggt á skráningu lögheimilis í þjóðskrá, sem leiddi til ofmats vegna þess að lítill hvati var til þess að tilkynna brottflutning frá landinu.  Nýja aðferðin byggir á lögheimilskráningu, en einnig er litið til þess hvort kennitalan sé í virkri notkun, þ.e. hvort einstaklingur sé t.d. skráður í skóla eða hafi fengið staðgreiðsluskyldar tekjur síðustu mánuði. Samkvæmt uppfærðum mannfjöldatölum voru íbúar landsins 383.726 talsins við síðustu áramót, 3,8% færri en eldri aðferð gaf til kynna, og fjölgaði um 2,3% á síðasta ári.
  • Launavísitalan hækkaði um 0,2% í febrúar, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti á föstudag.
  • Vöxtum var haldið óbreyttum í Bandaríkjunum og Bretlandi í síðustu viku. Verðbólga á Bretlandi lækkaði úr 4% í 3,4% í febrúar.
  • Alvotech og Iceland Seafood birtu ársuppgjör.
  • Lánamál ríkisins luku útboði ríkisvíxla. Hagar luku útboði í nýjum 6 mánaða víxlaflokki.

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 25. mars 2024 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Hús í Reykjavík
16. maí 2024
Spáum óbreyttri verðbólgu í maí
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,38% á milli mánaða í maí og að ársverðbólga haldist óbreytt í 6,0%. Húsnæðiskostnaður og flugfargjöld til útlanda munu hafa mest áhrif á vísitöluna, en í sitthvora áttina. Húsnæði hækkar en flugfargjöld lækka. Við teljum að verðbólga verði nær óbreytt út sumarið.
Kranar á byggingarsvæði
15. maí 2024
Ennþá spenna á vinnumarkaði þótt hægi á efnahagsumsvifum
Vinnumarkaðurinn hefur staðið af sér vaxtahækkanir síðustu ára og þótt eftirspurn eftir starfsfólki hafi minnkað er enn þó nokkur spenna á markaðnum. Nýir kjarasamningar kveða á um hóflegri launahækkanir en þeir síðustu og líklega dregur úr launaskriði eftir því sem þensla í hagkerfinu minnkar.
Peningaseðlar
13. maí 2024
Vikubyrjun 13. maí 2024
Samhliða því sem vextir hafa hækkað hafa innlán heimilanna aukist verulega. Þetta hefur skilað sér í stórauknum vaxtatekjum til heimila sem eru nú orðnar meiri en vaxtagjöld.
Fjölbýlishús
10. maí 2024
Spáum hækkandi íbúðaverði
Íbúðaverð hefur hækkað jafnt og þétt á síðustu mánuðum. Í nýrri hagspá spáum við því að það hækki um 7% á þessu ári og um 8-9% næstu tvö ár. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun spáir því að nýjum fullbúnum íbúðum fækki með hverju árinu og fjöldi þeirra komist ekki nálægt því að mæta íbúðaþörf.
Fólk við Geysi
7. maí 2024
Annað metár í ferðaþjónustu í uppsiglingu?
Síðasta ár var metár í íslenskri ferðaþjónustu á flesta mælikvarða, þó ekki hafi verið slegið met í fjölda ferðamanna. Hlutur ferðaþjónustunnar af landsframleiðslu var um 8,8% í fyrra og hefur aldrei verið stærri. Í nýrri hagspá gerum við ráð fyrir að fjöldi ferðamanna í ár jafni metið frá 2018 og að verðmætin sem greinin skili af sér verði meiri en nokkru sinni fyrr.
6. maí 2024
Vikubyrjun 6. maí 2024
Álit markaðsaðila á taumhaldi peningastefnu hefur breyst verulega á síðustu mánuðum þrátt fyrir að stýrivextir hafa verið óbreyttir síðan í ágúst í fyrra. Skýrist það af að verðbólga hefur hjaðnað og hægst hefur á hagkerfinu.
3. maí 2024
Væntingar og verðbólguhorfur aftra vaxtalækkun
Við spáum því að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Þótt verðbólga hafi hjaðnað verulega í apríl og ýmis merki séu komin fram um að undirliggjandi verðbólga fari hjaðnandi teljum við horfur á að verðbólga verði föst í kringum 6% fram yfir sumarmánuðina. Auk þess teljum við að nefndin líti svo á að verðbólguvæntingar hafi ekki gefið nægjanlega eftir og að enn séu merki um þó nokkra spennu í hagkerfinu.  
2. maí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 2. maí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Fólk að ganga við Helgafell
29. apríl 2024
Vikubyrjun 29. apríl 2024
Hagvöxtur verður takmarkaður á næstu árum, samkvæmt nýrri hagspá til ársins 2026 sem við gáfum út í morgun. Við spáum 0,9% hagvexti í ár, 2,2% á næsta ári og loks 2,6% árið 2026.
Fólk að ganga við Helgafell
29. apríl 2024
Hagspá 2024-2026: Þrautseigt hagkerfi við háa vexti
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að hagvöxtur verði afar lítill í ár þar sem háir vextir halda aftur af umsvifum í hagkerfinu. Verðbólga verði þrálát og vextir lækki ekki fyrr en í haust.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur